Ránstilraun í Reykjavík

Vopnuð tveimur hnífum reyndi kona um þrítugt að ræna bensínafgreiðslu.
Vopnuð tveimur hnífum reyndi kona um þrítugt að ræna bensínafgreiðslu. mbl.is/Júlíus

Kona um þrítugt reyndi að ræna Select-verslun á Bústaðavegi í Reykjavík klukkan 7:40 í morgun. Hún var með tvo hnífa, sinn í hvorri hendinni, hótaði starfsfólki og fór fram á að fá peninga. Henni var sagt að þarna væri enga peninga að hafa. Þá hvarf konan á braut akandi bíl.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk upplýsingar um skráningarnúmer bílsins sem konan ók og var hún handtekin skömmu síðar. 

Konan er nú í vörslu lögreglunnar en hún mun hafa verið eitthvað ölvuð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert