Snjóflóð og hálka fyrir norðan

Verið er að ryðja leiðina um Ólafsfjarðarmúlann.
Verið er að ryðja leiðina um Ólafsfjarðarmúlann. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Snjóflóð lokar Ólafsfjarðarmúla og veginum milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur en samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni er verið að moka.

Vegur er orðinn auður á Hellisheiði og í Þrengslum og vegir eru auðir
nánast um allt  Suðurland.

Á Vesturlandi er víðast hvar autt en þó er snjóþekja og éljagangur á
Fróðárheiði og hálkublettir á norðanverðu Snæfellsnesi,  Vatnaleið,
Bröttubrekku og Svínadal. Veður er hins vegar versnandi á Holtavörðuheiði og þar er nú hálka og skafrenningur.

Mokstri hefur verið hætt á  Klettshálsi og er hann orðin ófær, en að öðru leyti er ennþá þokkaleg færð á Vestfjörðum og Ströndum.

Veður er nú versnandi  á Norðurlandi vestra, vaxandi vindur, skafrenningur og éljagangur  og víða komin einhver hálka. Á Öxnadalsheiði er hálka og skafrenningur, en snjókoma eða éljagangur er við  Eyjafjörð og í Þingeyjarsýslum og víðast hvar snjóþekja eða hálka.

Þæfingsfærð er á Fagradal og enn er einhver biðstaða á Fjarðarheiði.

Á Suðausturlandi eru vegir að miklu leyti auðir þótt sumstaðar sé hált á köflum.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert