Snjóbíll sendur til bjargar

Snjóbíll í líkingu við þennan var sendur eftir fólkinu þar …
Snjóbíll í líkingu við þennan var sendur eftir fólkinu þar sem veður er afar slæmt.

Ófært er á Fjarðarheiði og vitað er um fimm bíla bílalest sem setið hefur föst þar í fjóra tíma. Tvö snjóruðningstæki eru að reyna að aðstoða lestina en gengur illa. „Það er snælduvitlaust veður og sér ekki fram yfir húdd á bílum og skefur í jafnóðum," sagði varðstjóri lögreglunnar á Egilsstöðum.

Snjóbíll björgunarsveitarinnar er á leiðinni að bjarga fólkinu úr bílunum þar sem ekki er útlit fyrir að takist að losa þá í bráð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert