Mikill viðbúnaður vegna hugsnanlegra umferðatafa

Viðbúnaður lögreglu á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar nú í morgun.
Viðbúnaður lögreglu á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar nú í morgun. mbl.is/Júlíus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nú með mikinn viðbúnað vegna boðaðra mótmælaaðgerða vörubílstjóra á helstu umferðargötum höfuðborgarsvæðisins. Bílstjórarnir hafa nú lokað Ártúnsbrekku til austurs og vitað er að von er á þeim að gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Einnig er lögregla með viðbúnað á Reykjanesbraut við álverið.

Aðgerðirnar eru framhald samsvarandi aðgerða í síðustu viku og er markmið þeirra að mótmæla háu eldsneytisverði 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert