Margra kílómetra bílaröð

Bílar á Sæbraut við Höfða.
Bílar á Sæbraut við Höfða. mbl.is/Júlíus

Óslitin bílaröð er nú frá Sundagörðum í Reykjavík eftir Sæbraut inn í miðborgina en mikill fjöldi ökutækja er nú á leið niður á Austurvöll þar sem haldinn verður mótmælafundur innan skamms vegna hás eldsneytisverðs.

Aðgerðirnar voru skipulagðar af ferðaklúbbnum 4x4 en klúbburinn styður kröfur atvinnubílstjóra um að álögur ríkisins á eldsneyti verði lækkaðar verulega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert