Sautján ára á hraðferð

Lögreglan stöðvaði hraðför ungrar stúlku í nótt.
Lögreglan stöðvaði hraðför ungrar stúlku í nótt. mbl.is/Július

Sautján ára stúlka var stöðvuð fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut, sunnan Hafnarfjarðar, í nótt en bíll hennar mældist á 153 km hraða. Á þessum hluta vegarins er 90 km hámarkshraði en aðspurð um aksturslagið sagðist stúlkan vera að flýta sér í bæinn. Hún hefur ekki áður komið við sögu hjá lögreglu.

Að sögn lögreglu voru nokkrir aðrir ökumenn teknir fyrir hraðakstur í umdæminu í gær en brot þeirra voru ekkert í líkingu við þetta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert