Sennilega lítil seinkun á flugi

mbl.is/Hilmar Bragi

Fyrstu vélar frá Leifsstöð í morgun eiga að fara í loftið kl. 7:40 og hugsanlegt er að mótmæli vörubílstjóra við Kúagerði, þar sem þeir stöðvuðu umferð í klukkustund nú í morgun milli kl. 5:30 og 6:30, hafi engin áhrif, samkvæmt upplýsingum frá starfsmanni Leifsstöðvar.

Ekki lá ljóst fyrir hvort einhverjar seinkanir myndu verða á þessari stundu en ekki var þó reiknað með að mótmæli vörubílstjóra myndu hafa veruleg áhrif.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert