2 umferðaróhöpp vegna lélegs frágangs á farmi
Tryggja þarf að farmur hreyfist ekki Júlíus Sigurjónsson
Tvö umferðaróhöpp urðu á Gullinbrú í gær en bæði má rekja til lélegs frágangs á farmi flutningabíla. Í því fyrra fauk timbur af palli vörubíls og hafnaði á fólksbíl sem skemmdist nokkuð. Skömmu áður hafði timbur fokið af vörubíl í Ártúnsbrekku en grunur leikur á að um sama vörubíl hafi verið að ræða, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Í því tilviki hlutust sömuleiðis af skemmdir en timbrið lenti þar einnig á fólksbíl. Í seinna óhappinu á Gullinbrú kom vörubíll aftur við sögu en á palli hans var stuðari af bíl. Stuðarinn datt af pallinum og á akbrautina og því þurfti ökumaður bíls sem á eftir kom að draga mjög skyndilega úr hraðanum.
„Ökumaður bíls þar á eftir náði ekki að bregðast við og árekstur varð ekki umflúinn. Aftanákeyrslan var hörð og skemmdust báðir bílarnir talsvert en um tvo fólksbíla var að ræða. Ökumenn þeirra voru fluttir á slysadeild. Mikil mildi þykir að ekki fór verr, sérstaklega þar sem fyrri vörubíllinn kom við sögu, og ljóst er að þeir sem flytja farm þurfa að vera miklu betur meðvitaðir um skyldur sínar.
Þess má geta að á dögunum kannaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, ásamt umferðareftirliti Vegagerðar ríkisins, frágang á farmi nokkurra flutningabíla. Athugasemdir voru gerðar í öllum tilvikum og því ljóst að misbrestur á frágangi farms er alltof algengur," að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.
Innlent »
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 13. apríl 2008, Innlent Laus úr öndunarvél eftir slys á Reykjanesbraut
- Þriðjudagur, 1. janúar 2008, Innlent Fok og vatnsskemmdir í Hnífsdal
- Miðvikudagur, 2. apríl 2008, Innlent Herferð til að vekja ökumenn til umhugsunar
- Þriðjudagur, 11. desember 2007, Innlent Annríki hjá björgunarsveitum
- Þriðjudagur, 11. nóvember 2008, Innlent Eldur logaði í pallbifreið á Reykjanesbraut
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur



































