Átelur vinnubrögð Hannesar
Hannes Hólmsteinn Gissurarson mbl.is/Golli
Rektor Háskóla Íslands, Kristín Ingólfsdóttir, átelur vinnubrögð Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar prófessors í stjórnmálafræði í bréfi sem hún hefur sent honum og gerir þá kröfu að þau verði ekki endurtekin. Segir rektor að vinnubrögð hans hafi rýrt traust skólans. Bréfið er sent í kjölfar dóms Hæstaréttar frá 13. mars sl. Samkvæmt dómnum er dr. Hannesi gert að greiða Auði Sveinsdóttur, ekkju Halldórs Laxness fébætur og málskostnað fyrir að hafa í fjölmörgum tilvikum brotið gegn höfundarétti eiginmanns hennar.
Í bréfi rektors kemur fram að rektor telji að staðfesting Hæstaréttar á því að dr. Hannes hafi við ritun ævisögunnar brotið gegn höfundarétti Halldórs Kiljans Laxness sé áfall fyrir Háskóla Íslands. Dómurinn sé staðfesting þess að dr. Hannes hafi sýnt af sér óvandvirkni í starfi sem teljist ósæmileg og ósamrýmanleg þeim kröfum sem Háskóli Íslands geri til akademískra starfsmanna sinna.
„Að fengnu áliti fjölmargra
lögfræðinga, bæði utan og innan Háskóla Íslands, telur rektor brotið
efnislega verðskulda áminningu til starfsmanns. Í ljósi mats á
stjórnsýslulegri meðferð málsins og þess stranga lagaramma sem skólanum
er gert að fylgja, ásamt því að fjögur ár eru liðin frá því að brotið
átti sér stað, telur rektor hins vegar að virða verði þessa þætti
starfsmanninum í hag. Háskólinn hafi ekki lagalegt svigrúm til að veita
áminningu með tilsvarandi réttaráhrifum. Niðurstaða málsins er því að í
bréfinu til dr. Hannesar átelur rektor vinnubrögð hans og gerir þá
kröfu að þau verði ekki endurtekin."
Með bréfinu er lokið meðferð rektors á máli því sem upphaflega hófst með kæru Auðar Sveinsdóttur.
„Rektor Háskóla Íslands bendir á að skólinn og starfsmenn hans hafi notið óviðjafnanlegs trausts í störfum sínum og slíkt traust sé grundvöllur starfsemi skólans og lykilatriði í þeirri sókn sem skólinn hefur hafið.
Úttektir alþjóðlegra og innlendra stofnana á starfsemi háskólans hafi leitt í ljós að starfsmenn hans hafi skilað mikilli og góðri rannsóknarvinnu á fjölbreyttu sviði vísinda undanfarin ár. Málið sem hér um ræðir er einstakt, þar sem vinnubrögð starfsmanns hafa rýrt traust skólans. Rektor hefur sett af stað vinnu innan skólans um setningu starfsreglna þar sem meðal annars verður tekið á þeim álitaefnum sem hafa komið upp í tengslum við mál dr. Hannesar til að fyrirbyggja að mál af þessu tagi komi upp aftur.
Háskóli Íslands," samkvæmt tilkynningu frá Háskóla Íslands.
|
|
Fréttatilkynningin frá Háskóla Íslands í heild |
Bloggað um fréttina
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir Fótnótufræðingar, gæsalappalið, allsherjartilvísanir, rittaka og átölur -
-
Svava frá Strandbergi Aumingja Hannes -
Heimir L Fjeldsted Misráðið. -
Páll Jóhannesson Kjarklaus rektor -
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson "Lykilatriði í þeirri sókn sem skólinn hefur hafið". -
Skaz Slegið á putta... -
Súsanna Svavarsdóttir Trúverðugleiki fræðasamfélagsins á Íslandi -
Aðalsteinn Baldursson Kæru nemendur Háskóla Íslands. -
Stefán Bogi Sveinsson Kemur aðeins á óvart -
Snorri Bergz Gula spjaldið -
Guðrún Helgadóttir ekki eru það skýr skilaboð -
Björgvin Guðmundsson Hannes Hólmsteinn tekur rétt á málum -
Ólína Þorvarðardóttir Athyglisvert -
Jóhannes Ragnarsson Sá ríkisrekni er ósnertanlegur eins og kaþólskur kirkjuhöfðingi -
Jenný Anna Baldursdóttir Skammastín Hannes!! -
Stefán Friðrik Stefánsson Hannes Hólmsteinn ekki áminntur af rektor
Innlent »
- Hvessir af suðri seint í kvöld
- Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti
- Ekki hika – hringdu til öryggis
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðaþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 4. apríl 2008, Innlent Hannes Hólmsteinn bendir á fyrri dóma Hæstaréttar
- Mánudagur, 11. júní 2007, Innlent Runólfur svarar Ágústi
- Föstudagur, 4. apríl 2008, Innlent „Mistökin eru til að læra af þeim“
- Föstudagur, 14. mars 2008, Innlent HÍ lítur dóm yfir prófessor alvarlegum augum
- Mánudagur, 15. október 2007, Innlent Ekki gerð athugasemd við að Ágústi Einarssyni var synjað um leyfi
-
Yrði ōðruvísi biskup
-
Lík Houston flutt af hótelinu
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin





































