Gera þarf stórátak í eldvörnum verðmætra húsa

Morgunblaðið Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is

 Gera þarf mikið átak í að bæta brunavarnir í gömlum húsum í borginni sem teljast til menningarverðmæta. Þetta kom fram á fundi með byggingarfulltrúa Reykjavíkur, slökkviliðsstjóra höfuðborgarsvæðisins og brunamálastjóra á fundi í gær. Þar var kynnt skýrsla Brunamálastofnunar um stórbrunann við Lækjartorg, sem varð 18. apríl í fyrra. Þá eyðilögðust tvö af eldri húsum borgarinnar, Lækjargata 2 og Austurstræti 22, í eldi.

Björn Karlsson brunamálastjóri kynnti skýrslu Brunamálstofnunar. Fram kom í máli hans að ekki væri líklegt að um íkveikju hefði verið að ræða en líkur eru taldar á því að eldurinn hafi komið upp í millilofti í Fröken Reykjavík og borist mjög hratt yfir í Austurstræti 22. Talið er að það hafi verið vegna þess að eldvarnarvegg vantaði. Björn sagði að svo virtist sem veggurinn hefði verið rifinn fyrir um 30–50 árum af þáverandi eigendum hússins. Hann sagði með ólíkindum að menn hefðu rifið slíkan vegg, enda hefði þeim átt að vera kunnugt um þá eldhættu sem það skapaði. Hefði eldveggurinn verið til staðar hefði eldurinn farið mun hægar á milli.

Að lokinni kynningu skýrslunnar ræddu Björn Karlsson, Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins, og Magnús Sædal Svavarsson, byggingarfulltrúi Reykjavíkur, við blaðamenn.

Björn sagðist telja að þeir sem rifu eldvarnarvegginn á sínum tíma hefðu vitað vel hvað þeir voru að gera. „Þetta var einbeittur brotavilji,“ sagði Björn.

Magnús benti á að saga húsanna sem um ræddi væri löng. Hann sagði að á teikningum frá því snemma á 20. öld kæmi fram að eldvarnarveggur væri á milli húsanna, en ekki væri tilgreint nánar hvernig hann væri. „En í dag erum við með brunatákn á þessum veggjum sem lýsa allt öðrum vegg heldur en nokkurn tíma hefur verið þarna.“ Með þessum upplýsingum frá brunamálayfirvöldum væri verið að senda rangar upplýsingar.

Fram kom hjá þremenningunum að einn helsti lærdómur sem draga mætti af brunanum væri að betur þyrfti að huga að eldvörnum í gömlum, verðmætum húsum. Til stendur að ráðast í úttekt á brunavörnum í gömlum byggingum sem teljast mikilvægar í menningarlegu tilliti. Þar má nefna Bernhöftstorfuna, Menntaskólann í Reykjavík, Iðnó og Höfða. Viðræður milli húsafriðunarnefndar, Brunamálastofnunar, forvarnadeildar SHS og byggingarfulltrúans í Reykjavík um þetta eru hafnar. Magnús benti á að í sumum hinna gömlu húsa væru upprunalegir viðir sem ekki fengjust lengur og Íslendingar hafi ekki efni á að missa þessi hús. „Við erum með fátæklegan byggingararf og þurfum svo sannarlega að hanga á því sem við eigum,“ sagði Magnús og nefndi í þessu sambandi byggingu Menntaskólans í Reykjavík, sem er frá árinu 1846. „Mér er ekki kunnugt um að það sé neitt vatnsúðakerfi í þessu húsi. Þarna var Þjóðfundurinn haldinn. Það er ekkert gaman að standa í eftirlíkingu af þessu húsi ef það skyldi farast í eldi.“

Jón Viðar benti á að hús sem teldust til menningarverðmæta gætu verið í eigu einkaaðila og erfitt gæti reynst að gera kröfur til þeirra um að leggja fé í varnirnar. „En þá þurfa jafnvel yfirvöld að koma með fjárstyrki til þess að bæta úr ástandi hússins,“ sagði Jón Viðar.

„Ég hef haft það á tilfinningunni frá því að þessi bruni varð að ég hafi brugðist [...] Mér finnst ég hafa brugðist í nokkuð víðtækum skilningi,“ sagði Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins, á fundinum í gær. Nefndi hann þar m.a. að æskilegt hefði verið að hann hefði verið búinn að ýta á brunamálayfirvöld að láta útbúa verklagsreglur, líkt og gildi á Norðurlöndunum, þar sem sérstaklega sé fjallað um hvernig haga eigi brunavörnum í menningarverðmætum.

„Við erum ekki að tala um eitthvert hús. Við erum að tala um hús frá því um aldamót og frá því fyrir aldamót,“ sagði hann. „Við hugsum ekki nógu vel um menningarverðmætin okkar,“ sagði hann einnig.

Jón Viðar sagði að einnig mætti velta fyrir sér hvort brunamálayfirvöld væru að bregðast þeim sem sinna byggingum, á borð við smiði, rafvirkja og aðra. „Er ekki nógu mikil fræðsla í menntakerfinu um alvarleika bruna?“ spurði Jón Viðar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »
Úr safni.

Átak gegn ölvunarakstri

15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
spari bíll til sölu
Til sölu Renault clio árg 03 ek 90 þ.km sumar og vetrar dekk skoðaður 13 mjög g...
Zimmermann píanó
Til sölu vel meðfarið Zimmermann píanó. Verð 125.000. Upplýsingar í síma 84589...
HÓPFERÐABÍLAR
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU með eða án bílstjóra. --------16 manna-------- --------9...
Hyundai Tucson til sölu
Til sölu Hyundai Tucson nýskr. 29.10.2004. Sjálfskiptur, dráttarkrókur, bensín, ...
 
Kennarar og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Hafralækjarskóli og Litlulaugaskóli í Þ...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Bókari og launafulltrúi
Skrifstofustörf
Samband íSlenSkra Sveitarfélaga Star...