Telja að launin þurfi að hækka um 26-28%

Í nýrri kjarakönnun sem Capacent Gallup hefur gert fyrir Bandalag háskólamanna kemur í ljós að félagsmenn telja að laun þeirra þyrftu að hækka um 26-28% til að geta talist sanngjörn. Munur á meðallaunum karla og kvenna reynist 13,3% en þar af er kynbundinn launamunur 5,7%.

Kynbundinn launamunur er minnstur hjá félagsmönnum 30 ára og yngri.  Helmingur aðspurðra telja sig ekki eiga möguleika á launahækkun í starfi sínu og er aðalástæðan þar að baki að laun eru fastbundin af kjarasamningum að mati félagsmanna BHM.

Í tilkynningu kemur fram að Capacent Gallup hefur einnig unnið sambærilegum kjarakannanir fyrir Verslunarmannafélag Reykjavíkur og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja. Þar hallar verulega á félagsmenn BHM því samanburður leiðir í ljós að heildarlaun háskólamenntaðra innan VR eru 10% hærri og heildarlaun háskólamenntaðra innan SSF heilum 22% hærri en heildarlaun félagsmanna BHM.

„Einnig kemur í ljós að vinnuvikan er lengri hjá BHM eða 46,1 klukkustund á móti 43,8 stundum hjá starfsmönnum fjármálafyrirtækja og 45 stundum hjá VR. Því er ljóst að aðildarfélög BHM hafa verk að vinna í kjarabaráttu komandi vikna enda er eitt helsta baráttumál samtakanna að öll háskólamenntun sé metin að verðleikum," samkvæmt tilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Toyota Corolla1,4 VVTi,8/2003
Til sölu Toyota Corolla 1,4 VVTi, 8/2003. Ek. 100 þús., bensín, nýskoðaður, ný ...
Til sölu Kia Sorento 2007 diesel 4X4 ekinn 77þús
Sjálfskiptur,1 eigandi,ekkert ákvílandi,dr.beisli, dr.geta 3500kg,skoðaður 2012...
HÚSBÍLL
FORD 1986 38" ísskápur, vaskur og eldavél. verð 390.þús. uppl. 6595055...
TRAKTORSDEKK
Traktorsdekk rýmingarsala 11.2-24 kr. 35.900. 14.9-24 kr. 49.900. 13.6-24...
 
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Samkoma sunnudagur
Félagsstarf
Sunnudagur Kl. 11.00 Samkoma o...
Umsjónarkennsla - sérkennsla - textílkennsla - þroskaþjálfi
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...
Skólastjóri við grandaskóla
Grunn-/framhaldsskóla
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...