Undirbúa áhrif kreppunnar
„Skjólstæðingar okkar eru ekki með há lán þannig að það er ekki fyrr en hækkun á matarverði fer að skella á sem við förum að finna muninn,“ segir Vilborg Oddsdóttir, sem hefur umsjón með innanlandsaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar, aðspurð um það hvort þeim sem leita til þeirra eftir aðstoð hafi fjölgað í kjölfar efnahagskreppunnar. „Þetta er spurning um það þegar maturinn fer að hækka því það munar mikið um 5 til 10 þúsund krónur á mánuði hjá þeim sem eiga þær ekki til,“ bætir hún við.
Ásgerður Jóna Flosadóttir, forsvarsmaður Fjölskylduhjálpar Íslands, tekur undir orð Vilborgar. „Ég held að við komum til með að sjá núna í apríl, maí og júní alveg gríðarlega aukningu hjá okkur,“ segir Ásgerður Jóna en hún segir að rúmlega 700 fjölskyldur leiti aðstoðar hjá Fjölskylduhjálpinni á mánuði.
Aðalheiður Frantzdóttir, framkvæmdastjóri Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, býst eins og Ásgerður Jóna við því að skjólstæðingum muni fjölga á næstu mánuðum. „Til okkar koma að jafnaði 160 til 170 manns í viku en ég gæti vel trúað að þeir verði orðnir 200 þegar líður á haustið,“ segir Aðalheiður.
Fjölgar jafnt og þétt
Aðalheiður segir að þeim sem sækja sér aðstoð til þeirra hafi fjölgað jafnt og þétt á undanförnum tveimur til þremur árum. Undir þetta tekur Ásgerður Jóna. „Það er alltaf að koma nýtt fólk til okkar,“ segir hún.Stuðningur mikilvægur
Vilborg segist finna fyrir því að fyrirtæki séu farin að draga úr aðstoð sinni til félagasamtaka almennt. „Fyrirtæki gáfu áður matvörur sem voru að nálgast síðasta söludag, en þau eru eiginlega alveg hætt að gefa okkur það.“Þær Aðalheiður og Ásgerður Jóna segjast ekki finna fyrir minni stuðningi og taka fram að stuðningur bæði hins opinberra og fyrirtækja verði mjög mikilvægur á næstunni.
Í hnotskurn
Fjölskylduhjálpin, Mæðrastyrksnefnd og Hjálparstarfið aðstoða öll bágstadda með matargjöfum á miðvikudögum. Fjölskylduhjálpin veitir einnig aðstoð við lyfjakaup og Hjálparstarfið læknisaðstoð og námsstyrki.Innlent »
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 11. desember 2008, Innlent Nýjum andlitum fjölgar hjá Fjölskylduhjálpinni
- Fimmtudagur, 2. október 2008, Innlent Margir þurftu aðstoð í skólabyrjun
- Miðvikudagur, 27. ágúst 2008, Innlent Segir að Fjölskylduhjálpin hafi mætt tónlæti
- Föstudagur, 5. desember 2008, Innlent Fjölskyldur í fóstur
- Þriðjudagur, 16. desember 2008, Innlent Fólk grætur fyrir framan okkur
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur



































