Gera athugasemd við frétt um myglusveppi

Keilir gerir athugasemdir við frétt í 24 stundum í dag þar sem fjallað er um myglusvepp í nemendaíbúðum.

 „Keilir starfar að uppbyggingu á fjölskylduvænni háskólabyggð og leggur ásamt samstarfsaðilum sínum áherslu á að skapa íbúum sínum og börnum þeirra gott og öruggt umhverfi . Velferð barna á svæðinu er stór þáttur í þeirri sýn sem  Keilir hefur sérstaklega lagt áherslu á. Keilir harmar því skaðlegan fréttaflutning 24stunda í  dag um myglusvepp í nemendaíbúðum sem er að okkar mati órökstuddur og einhliða, auk þess sem hann virðist byggjast á sögusögnum en ekki staðreyndum.

Keilir gerir eftirfarandi athugasemdir við frétt 24stunda:

1.       Ekki var haft samband við Keili við vinnslu fréttarinnar.

2.       Skemmdir vegna  raka eða myglu hafa komið upp vegna galla í einangrun í u.þ.b.  30 íbúðum af þeim tæplega 500 sem Keilir hefur nú til útleigu. Þegar kvörtun kemur fram er viðkomandi íbúð skoðuð og síðan gert við skemmdina í samráði við íbúa. Viðgerð tekur að jafnaði  5 daga.

3.       Sýni voru tekin úr nokkrum íbúðum og greind. Þar var myglusveppur ekki til staðar í því magni að hann skapi íbúum hættu.

4.       Orðið hefur verið við óskum þeirra sem hafa beðið um að flytja úr íbúð sinni yfir í aðra.

5.       Allt verkferli hefur verið unnið í samvinnu við fagaðila, tvær verkfræðistofur, Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja, Náttúrufræðistofnun Íslands og Hús og heilsu. Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, líffræðingur hjá Hús og heilsu, sem er sérfræðingur á þessu sviði, telur að verkferla og viðbrögð Keilis í málinu hafi verið til fyrirmyndar.

6.       Samkvæmt upplýsingum frá leikskólastjóra, þar sem dveljast á annað hundrað börn, eru engin merki um óeðlilega tíðni veikinda þeirra.

7.       Í því tilfelli sem 24 Stundir fjalla um í morgun þá fullyrðir viðkomandi leigjandi að rangt sé eftir sér haft varðandi skoðanir hennar um veikindi barna á svæðinu.  Keilir hefur heldur engar upplýsingar um að barn af svæðinu hafi verið lagt inn á sjúkrahús með “sár á lunga” í gær eins og fram kom í frétt 24 Stunda. Að auki  liggur fyrir það mat lungnalækna að engin tengsl væru möguleg milli slíkra alvarlegra veikinda og myglusveppa vegna raka.

8.       Í því tilfelli sem fjallað er um í 24 stundum er hins vegar rétt að kvörtun barst fyrir þremur vikum sem ekki var brugðist við eftir ofangreindu verkferli vegna mistaka. Viðkomandi leigjandi hefur þegar verið beðin velvirðingar á því.

Þegar hundruðir íbúða eru gerðar upp og teknar í notkun eftir að hafa staðið auðar er ekki óeðlilegt að gallar og skemmdir komi fram í einstaka íbúðum. Keilir leggur áherslu á að hér er um að ræða lítið hlutfall þeirra nemendaíbúða sem eru á svæðinu og að almennt eru íbúar þess mjög ánægðir með húsakynni sín og allan aðbúnað,” að því er segir í yfirlýsingu frá Keili. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert