Innlent
| 24 stundir
| 5.4.2008
| 5:30
| Uppfært
7:25
Samkeppniseftirlitið: Verkefnum fjölgar en skilvirkni eykst
Samkeppniseftirlitið mbl.is/Golli
Kvartanir helmingur mála
Mörg þeirra mála sem Samkeppniseftirlitið sinnir eru smávægilegar athuganir og eftirlit sem ekki verða að stjórnsýslumálum. Hins vegar hefur stjórnsýsluathugunum fjölgað jafnt og þétt hjá eftirlitinu. Mál koma einkum til kasta Samkeppniseftirlitsins með þrennum hætti. Fyrir það fyrsta tekur það fyrir formlegar kvartanir fyrirtækja á hendur samkeppnisaðilum eða hinu opinbera. Um helmingur stjórnsýslumála hjá stofnuninni kemur til með þeim hætti. Í öðru lagi fylgist stofnunin með innlendum markaði og framkvæmir að eigin frumkvæði skoðun á málum ef grunur leikur á að um brot á samkeppnislögum sé að ræða. Í þriðja lagi berast stofnuninni ábendingar, ýmist frá fyrirtækjum eða einstaklingum sem svo er brugðist við.Málsmeðferðarhraði eykst
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segist telja að eftirliti með samkeppnismálum hér á landi sé tiltölulega vel háttað. Stofnunin hafi aukið málsmeðferðarhraða þrátt fyrir að málum sem til kasta hennar koma hafi fjölgað. Hins vegar sé ljóst að þörf sé á að styrkja embættið enn frekar, ekki síst til að flýta rannsókn mála. „Það hefur verið unnið að því að styrkja Samkeppniseftirlitið mikið síðustu misserin og vonandi verður framhald þar á. Með því hefur hraði á meðferð mála aukist en það er rétt að hafa í huga að það er ýmislegt sem getur haft áhrif þar á. Mörg þeirra mála sem við skoðum eru viðamikil og flókin. Það eru settar strangar kröfur á eftirlitið um að sýna fram á brot og rannsaka mál með viðhlítandi hætti og gefa málsaðilum færi á að koma með athugasemdir og upplýsingar. Það tekur auðvitað tíma og við fáum líka oft kvartanir frá aðilum mála varðandi það að þeir fái stuttan tíma til að koma sínum athugasemdum að.“Að jafnaði 100 mál í gangi
Páll Gunnar telur að engin eðlisbreyting hafi orðið á samkeppniseftirliti hér á landi við breytingarnar sem gerðar voru á samkeppnislögunum árið 2005. Markmiðið með þessum breytingum hafi verið að gera vinnu við samkeppniseftirlit skilvirkari og það hafi að mörgu leyti tekist þó enn megi gera betur. Páll Gunnar segir hins vegar eðlilegt að mál taki tíma í vinnslu. „Að jafnaði eru í gangi hjá okkur 100 mál í einu. Það verður að hafa í huga að þessi mál eru mjög misjöfn að umfangi. Sérstaklega taka mál sem hafin eru með húsleit, þar sem að gríðarlega miklum gögnum er safnað, óhjákvæmilega langan tíma.“
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin





































