Lyftan brann yfir

Fólki, sem hugðist taka sér far með lyftu á einni af sjúkrastofnunum borgarinnar um miðjan dag á föstudag, var nokkuð brugðið þegar lyftumótorinn brann yfir og rafmagnið sló út. 

Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu opnaðist lyftuhurðin fljótt og fólkið komst út en nokkurn tíma tók að koma lyftunni í samt lag aftur. Vegna þessa þurfti m.a. að loka nálægri götu í dágóðan tíma enda var slökkviliðið kallað út.

Lögreglan segir, að atvikið megi rekja til mannlegra mistaka. Burðargeta lyftunnar miðast við sex manns en þegar óhappið varð voru ellefu manns um borð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert