Stefnt að samræmingu kynningarstarfs
Nefnd, sem forsætisráðherra skipaði í haust um ímynd Íslands, leggur til að kjarninn í þeirri ímynd verði kraftur, frelsi og friður og segir að náttúrulegur kraftur sé sérkenni Íslands. Segir nefndin, að þetta séu lykilorð sem farsælt sé að byggja á jákvæða og sanna ímynd af landi og þjóð.
Skýrsla nefndarinnar var kynnt í dag, og tók Geir H. Harde, forsætisráðherra, fram á blaðamannafundi, að nefndarstarfið hefði verið ólaunað. Sagði Geir, að ákveðið hefði verið að vinnuhópur fjögurra ráðuneyta muni fylgja skýrslunni eftir og útfæra tillögur sem þar koma fram.
Nefndin leggur m.a. til, að komið verði á nýjum vettvangi, Promote Iceland, þar sem aðilar í útflutningi, ferðaþjónustu, fjármálastarfsemi, menningarlífi og þekkingariðnaði kæmu til samstarfs við hið opinbera.
Segir nefndin að þetta feli í sér endurskipulagningu á núverandi fyrirkomulagi og fjármögnun kynningarmála Íslands. Þá vill nefndin að prófaðir verði ímyndarkjarnar og sérkenni við helstu atvinnugreinar og markhópa.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, sagði á fundi þar sem skýrslan var kynnt, að mikil vinna væri unnin til að styrkja ímynd Íslands en hana þyrfti að samræma betur.
Svafa Grönfeldt, rektor við Háskólann í Reykjavík og formaður nefndarinnar, sagði á fundinum að álag á ímynd Íslands hefði verið mikið að undanförnu. Ásamt henni sátu í nefndinni Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Jón Karl Ólafsson, forstjóri JetX/Primera Air, Martin Eyjólfsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs í utanríkisráðuneytinu, Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar og Sverrir Björnsson, framkvæmdastjóri hönnunarsviðs Hvíta hússins.
Bloggað um fréttina
-
Benedikt Bjarnason Áætlun segir ekki alltaf til um útkomu. -
Guðrún Helgadóttir já, hljómar þetta ekki bara vel? -
Anna Guðný Hverjir sitja í þessari nefnd?
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 7. apríl 2008, Innlent „Ímynd Íslands jákvæð en veikburða"
- Miðvikudagur, 7. nóvember 2007, Innlent Forsætisráðherra skipar nefnd um ímynd Íslands
- Mánudagur, 16. júní 2008, Innlent Sjálfsmynd Íslands úrelt?
- Miðvikudagur, 7. mars 2007, Innlent Vill að áhrif hvalveiða á ímynd Íslands verði skoðuð
- Miðvikudagur, 11. júní 2008, Innlent Skoðanir í ímyndarskýrslu á skjön við nýjustu sagnfræðirannsóknir
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































