Fíkniefni fundust við húsleit

Fíkniefni fundust við húsleit í vesturbæ Reykjavíkur síðdegis í dag. Að sögn lögreglu er talið að um sé að ræða 200 grömm af maríjúana, 40 grömm af amfetamíni og 300 skammta af LSD.

Karlmaður um fertugt og kona á þrítugsaldri voru handtekin vegna rannsóknar málsins. 

Í framhaldinu var farið í hús annars staðar á höfuðborgarsvæðinu en þar fundust neysluskammtar af fíkniefnum sömu tegundar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert