Akstursstefnur aðgreindar

mbl.is/Helgi Bjarnason

Vegagerðin hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna alvarlegs umferðarslyss sem varð á framkvæmdasvæði á Reykjanesbraut í morgun þar sem fram kemur að ákveðið hafi verið að aðskilja aksturstefnur með föstum rauðum og hvítum gátskiltum á milli akreina á allra næstu dögum. Þá verði komið upp stærri skiltum til að vekja aukna athygli á því að ekið sé á tvístefnuakreinum. 

Tilkynningin fer í heild sinni hér á eftir:

Frá því að Jarðvélar ehf. sögðu sig frá tvöföldun Reykjanesbrautarinnar í desember síðastliðnum hefur Vegagerðin unnið að því að bæta merkingar og auka umferðaröryggi við framhjáhlaup á framkvæmdasvæðinu. Þrátt fyrir verulegar merkingar á svæðinu hefur Vegagerðin nú ákveðið að aðskilja aksturstefnurnar með föstum rauðum og hvítum gátskiltum á milli akreina. Þetta verður gert á allra næstu dögum. Einnig mun strax fyrir helgina verða bætt við stærri skiltum til að vekja aukna athygli á því að ekið sé á tvístefnuakreinum. 

Þetta hefur þá í för með sér að á löngum kafla mun framúrakstur ekki vera mögulegur, vegfarendur verða einnig að vera viðbúnir því að með tilkomu gátskiltanna á miðju vegarins mun ökuhraði líklega minnka og ferðatími lengjast.  

Fáar framkvæmdir hafa fengið jafn mikla athygli og þessi undanfarna mánuði. Vegagerðin hefur ítrekað varað vegfarendur við hættunni sem stafar af framkvæmdunum og framhjáhlaupunum.  Ekki stóð til að framhjáhlaupin yrðu opin þetta lengi og heldur ekki að þau væru svona mörg opin í einu en verktakinn stóð ekki við kröfur Vegagerðarinnar í þessum efnum. Tíðarfarið í vetur hefur heldur ekki hjálpað til.  

Aðstæður þarna eru afar óvenjulegar og endurtaka sig vonandi ekki aftur. Vegagerðin mun eigi að síður taka til skoðunar að nauðsynlegt getur reynst að aðskilja aksturstefnur algerlega í öllum framhjáhlaupum.  

Í gær voru opnuð tilboð í þá vinnu sem eftir er og hefjast  þegar samningar við lægstbjóðanda Adakris uab.og Toppverktaka ehf sem munu taka 2-3 vikur. Framkæmdir ættu að geta haldið áfram fljótlega eftir það.  Vegagerðin ítrekar þau tilmæli til vegfarenda að aka varlega á framkvæmdasvæðum og aka ætíð í samræmi við aðstæður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert