Fleiri slys og óhöpp
„Það er ekki eftir neinu að bíða. Við getum ekki beðið eftir reglugerð eða einhverju öðru. Við verðum að beita öðrum úrræðum þangað til,“ segir Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferðarstofu varðandi ástandið á Reykjanesbraut, en enn eitt umferðarslys varð á veginum í morgun.
Samkvæmt upplýsingum frá slysaskráningu Umferðarstofu urðu ríflega tvöfalt fleiri slys og óhöpp á Reykjanesbraut frá ágúst í fyrra til janúar í ár en á tímabilinu frá ágúst árið 2004 til janúar 2005. Um er að ræða þann kafla Reykjanesbrautarinnar þar sem vegaframkvæmdir hafa staðið yfir, þ.e. rétt austan við vegamótin við Vogaafleggjarann og vestur að Njarðvík.
Samkvæmt Umferðarstofu urðu slysin og óhöppin alls 24 talsins á fyrra tímabilinu sem um ræðir, en þau voru 55 talsins frá og með ágúst 2007 til janúarloka 2008.
Eitt alvarlegt slys, sex slys með litlum meiðslum og 17 óhöpp án meiðsla urðu á fyrra tímabilinu. Á því seinna urðu svo 15 slys með litlum meiðslum og 40 óhöpp án meiðsla.
Síðan þá hafa fleiri slys og óhöpp átt sér stað, nú síðast í morgun við Vogaafleggjarann á Reykjanesbraut og liggja fjórir alvarlega slasaðir á slysa- og bráðadeild Landspítalans í Fossvogi.
Vegagerðin greindi frá því fyrr í dag að ákveðið hafi verið, í kjölfar slyssins sem varð í morgun, að aðskilja akstursstefnur með föstum rauðum og hvítum gátskiltum á milli akreina á allra næstu dögum. Þá verði komið upp stærri skiltum til að vekja aukna athygli á því að ekið sé á tvístefnuakreinum á umræddu framkvæmdasvæði.
Bloggað um fréttina
-
Birgir Þór Bragason HA? Ekki eftir neinu að bíða? Hvar voru þið Einar ... -
Óskar Helgi Helgason Rolunum hjá Umferðarstofu; sem vökturum (Lögreglu) nær, að hafa gætur ... -
Bylgja Hafþórsdóttir Jú, endilega bíða þar til fleiri eru fallnir! -
Högni Jóhann Sigurjónsson Hvar í fjandanum eru þið búin að vera
Innlent »
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 6. maí 2009, Innlent Varasöm gatnamót löguð í sumar
- Fimmtudagur, 22. mars 2007, Innlent Aukin löggæsla samhliða markvissum áróðri besta leiðin
- Mánudagur, 25. júní 2007, Innlent Alvarlegum umferðarslysum fjölgar mikið milli ára
- Mánudagur, 17. desember 2007, Innlent Umferðaróhöppum fjölgar
- Fimmtudagur, 22. mars 2007, Innlent Gríðarleg fjölgun banaslysa í umferðinni í fyrra
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur





































