FT segir Baug fjarlægjast bankana

Börsen segir áhyggjur hafa verið uppi um lausafjárstöðu Baugs og að „hefð“ sé fyrir samanfléttuðu ... stækka

Börsen segir áhyggjur hafa verið uppi um lausafjárstöðu Baugs og að „hefð“ sé fyrir samanfléttuðu eignarhaldi á félögum á Íslandi.

Baugur leitast við að hreinsa sig frá fasteignum og íslenskum bönkum, tveimur geirum sem eiga í erfiðleikum,“ segir í breska blaðinu Financial Times. Er þar vísað til eigna FL Group, sem Baugur seldi nýja fjárfestingarfélaginu Styrk Invest. „Breytingin fjarlægir Baug frá fjármálageiranum, þrátt fyrir að tengslin milli stjórnarformannsins og nýju félaganna séu enn óljós.“

Með þessum hreyfingum segir FT Baug skerpa áhersluna á fjárfestingar í smásölu eins og reyndar kom fram hjá félaginu sjálfu. Þá segir að Baugur undirbúi nú tilboð í bresku fatakeðjuna Moss Bros og íhugi að stækka hlut sinn í stórversluninni Saks í Bandaríkjunum.

Ekki sala, heldur endurskipulag

Í Times var hins vegar greint frá getgátum um að Baugur myndi selja núverandi hlut í Moss Bros. Aðgerðirnar voru sagðar endurspegla þá tilfinningu að „fjáðir frumkvöðlar og ránfuglar“ gætu hagnast á lægð lausafjárkreppunnar, enda hafi verið haft eftir Gunnari Sigurðssyni, forstjóra Baugs, að kauptækifæri lægju í núverandi markaðsaðstæðum.

Ummæli Svenns Dam, stjórnarformanns Nyhedsavisen, vöktu athygli en í samtali við viðskiptavef Jyllands-Posten sagðist hann ekki sjá að Íslendingarnir hefðu selt neitt, heldur hefðu þeir endurskipulagt. Líkt og hjá Baugi gegni Jón Ásgeir Jóhannesson einnig stjórnarformennsku hjá Stoðum Invest, sem keyptu 49% hlut Baugs í danska fríblaðinu. Tæplega sé því um eigendaskipti að ræða. Ennfremur verði engar mannabreytingar innan Nyhedsavisen eða Dagsbrun Media í Danmörku. Af dönskum eignum skiptir fjórðungshlutur FL Group í bruggfyrirtækinu Royal Unibrew, sem framleiðir m.a. Faxe-bjór, óbeint um hendur. Baugur mun hins vegar halda eftir Illum og Magasin du Nord, enda í takt við aukna áherslu á smásöluverslun.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Fangelsið á Litla-Hrauni.

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Trek Jet 20" 5 - 9 ára
Til sölu Trek barnahjól svart/blátt, lítur vel út, nýlegt afturdekk, alltaf geym...
Skoda Oktavia til sölu
Skoda Oktavia station bíll, árgerð 2005 til sölu. Bíllinn er keyrður um 130.000 ...
Fallegur Snyrti og Nuddbekkur-Verð : 69.000 Sterkur - Ódýr- Fallegur. 5 ára ábyrgð
www.simnet.is/eirikurs/nuddbord.html S: 8626194. Borð með baki til að hækka og ...
Yndislegur HRFÍ Maltese hvolpur til sölu
7 mánaða gamall og með ættbók frá HRFÍ. Foreldrar eru Alþjóða- og íslenskir meis...
 
Uppgjörsvinna
Skrifstofustörf
Uppgjörsvinna Endurskoðunarskrifstofa au...
Til sölu m-bens e-200

Til sölu M-BENS E-200 Árgerð...
Aðalfundur lögfræðingafélags íslands

Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands ve...
Verkefnisstjóri - stofnun vigdísar finnbogadóttur
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...