Biðlistar BUGL hafa styst
Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir, yfirlæknir BUGL, sagði að lengi hefði verið þörf á að auka og samhæfa þjónustu deildarinnar. Hlustað hefði verið á tillögur starfsfólks og í ágúst sl. fékkst aukið fjármagn. Í kjölfarið voru ráðnir fjórir nýir starfsmenn auk fræðslustjóra.
Starfsfólk BUGL hefur aukið vinnuálag undanfarna tvo mánuði og m.a. sett upp svonefnda „laugardagsklínik“. Þá hefur verið unnið utan hefðbundins vinnutíma til þess að taka við börnum af biðlista.
Á undanförnum tveimur mánuðum er búið að vinna um 22 mál af biðlistum umfram það sem ella hefði verið unnt að sinna. Um miðjan ágúst 2007, þegar ákveðið var að auka framlög til BUGL, voru 165 mál á biðlistanum en nú eru þau 107. Á þessum tíma hafa borist um 100 nýjar tilvísanir. Af þeim hafa bæst við um 80 ný mál á biðlistann. Í heild hafa því verið unnin tæplega 140 mál á rúmu hálfu ári. Guðrún sagði að miðað væri við að bið eftir þjónustu á borð við þá sem BUGL veitti væri um þrír mánuðir. Hún sagði starfsfólk BUGL hafa leitað leiða til þess að biðlistinn lengdist ekki aftur.
„Við höfum viljað leggja áherslu á samvinnu við aðrar stofnanir, bæði þjónustumiðstöðvar og heilsugæslu,“ sagði Guðrún. „Við viljum auka fræðslu til lækna í heilsugæslu og eins annarra sem koma að þjónustu við börn og unglinga með geðraskanir. Einnig kemur til greina að flytja úrræði sem við höfum hér til heilsugæslunnar þannig að hægt sé að nálgast vandann í nærumhverfi barnanna.“
Í janúar sl. fór af stað tilraunaverkefni þegar starfsfólk BUGL veitti starfsfólki heilsugæslustöðvarinnar á Egilsstöðum og öðrum þjónustuaðilum þar fræðslu. Einnig var haldið þjálfunarnámskeið fyrir foreldra barna með ofvirkni og athyglisbrest. Fyrirhuguð er aukin handleiðsla og ráðgjöf. Markmiðið er að heilsugæslustöðin verði þekkingarmiðstöð í sínum landsfjórðungi varðandi börn með geðraskanir. Þá er hafið samstarf við tvær heilsugæslustöðvar í Reykjavík og hefur teymum heilsugæslustöðva og þjónustumiðstöðva sem tengjast einstökum skólum verið veitt handleiðsla.
Bloggað um fréttina
-
Björgvin Guðmundsson Biðlistar BUGL styttast -
Óttarr Guðlaugsson Jákvæðar fréttir -
hofy sig Þjóðarskömm
Innlent »
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 19. febrúar 2008, Innlent Börnum fækkar á biðlista BUGL
- Fimmtudagur, 16. ágúst 2007, Innlent Eru 150 milljónir nóg?
- Þriðjudagur, 9. september 2008, Innlent Rýmkast um BUGL
- Miðvikudagur, 4. apríl 2007, Innlent Landlæknir segir rangt að illa sé staðið að málum átröskunarsjúklinga
- Sunnudagur, 29. apríl 2007, Innlent Samfylkingin vill tryggja börnum og öldruðum á biðlistum örugga þjónustu
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...




































