Ekki miklar skemmdir
Ekki er talið að miklar skemmdir hafi orðið í brunanum í Turninum í Smáralind í Kópavogi í gærkvöldi. Eldur kom upp í útbyggingu úr Turninum en eldvarnarveggur skilur hana frá sjálfu háhýsinu. Að sögn varðstjóra slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu lak ekki mikið vatn niður á næstu hæð.
Í dag verða skemmdir kannaðar. Á hæðinni fyrir neðan þá sem eldurinn geisaði á eru leikfangaverslun og banki en varðstjóri slökkviliðsins telur að miðað við aðstæður hafi hvorki reyk- né vatnsskemmdir verið miklar.
Það voru lögreglumenn í hefðbundnu eftirliti sem áttu leið um, urðu reyksins varir og gerðu viðvart. Að sögn varðstjóra lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gekk greiðlega að rýma turninn.
Um 40 slökkviliðsmenn börðust við eldinn í gærkvöldi en búið var að ganga úr skugga um að slökkt væri í öllum glæðum um klukkan 2 í nótt.
„Það eru einungis nokkrir dagar síðan við vorum þarna í könnunarheimsókn síðast," sagði Friðjón varðstjóri slökkviliðsins í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins í morgun.
Hann sagði að það hjálpaði alltaf að hafa heimsótt byggingar sem þessa því þá væru menn fljótari að átta sig á staðháttum.
Ekki er vitað um eldsupptök en ljóst er að þau urðu á þeim hluta hússins sem enn er á byggingarstigi.
Tilkynnt var um eld í Turninum laust fyrir klukkan tíu í gærkvöld. Eldurinn kviknaði á annarri hæð og lagði mikinn reyk frá honum.
Fólk var í húsinu, bæði á veitingastað á 19. hæð og líkamsræktarstöð á 12. hæð, en húsið var strax rýmt.
Bloggað um fréttina
-
Jenný Anna Baldursdóttir Reðurtákn Smárans -
Haraldur Bjarnason Eldur í turninum! - Hvar var Tópías?
Innlent »
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 9. apríl 2008, Innlent Enginn í hættu vegna eldsins
- Miðvikudagur, 9. apríl 2008, Innlent Eldur í Turninum í Kópavogi
- Mánudagur, 22. september 2008, Innlent Eldsvoði hjá verktaka
- Föstudagur, 20. júní 2008, Innlent Eldur í gasgrilli
- Miðvikudagur, 9. apríl 2008, Innlent Ráða niðurlögum eldsins
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur






































