Lækka verð á nýjum bílum um allt að 8%
Misjafnt eftir tegundum
Nýir bílar hjá B&L hafa lækkað um 5% að meðaltali vegna styrkingar krónunnar. Lækkunin er svipuð og nýjasta hækkun sem var vegna veikingar krónunnar.
Andrés Jónsson, upplýsingafulltrúi B&L, segir að þegar gengið hafi fallið mikið fyrir skömmu, hafi hækkanir verið óumflýjanlegar en nú voni menn að jafnvægi sé náð með styrkingu krónunnar og því hafi verið ákveðið að lækka verðið aftur og skila styrkingunni til viðskiptavinanna.
Lækkunin er misjöfn eftir tegundum en Andrés segir að hún sé frá um 100 þúsund krónum upp í rúmlega milljón á bíl og með frekari styrkingu krónunnar megi gera ráð fyrir frekari lækkunum.
Karl Steinar Óskarsson, sölustjóri hjá Ingvari Helgasyni, tekur í sama streng. Hann segir að allir nýir bílar hafi lækkað í fyrradag um allt að 8%. Hann bendir á að bílar hjá umboðinu hafi hækkað samtals um 15% í þremur áföngum frá áramótum en um leið og krónan hafi styrkst, hafi verðið verið lækkað. Hann segir að verði áframhald á styrkingu krónunnar megi gera ráð fyrir frekari lækkunum.
Enn nokkuð í land
Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar, bendir á að frá áramótum til 28. mars hafi krónan veikst um 30-35% gagnvart erlendum myntum en sé tekið mið af sveiflunum undanfarna daga sé veikingin um 25-30%. Á sama tíma hafi verið 9-12% hækkun hjá Brimborg. Í stað þess að elta toppinn hafi verið ákveðið að hækka minna í þeirri von að krónan styrktist aftur. Enn væri verið að bíða eftir að hún næði 10-12% markinu svo hægt væri að lækka á ný. Á þessari stundu væri því ekki ástæða til lækkunar en það yrði skoðað þegar evran yrði komin niður í 110-111 krónur.Innlent »
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 8. janúar 2008, Innlent Verð á nýjum bílum hækkar
- Fimmtudagur, 5. febrúar 2009, Innlent Vöruverð á að lækka
- Miðvikudagur, 11. apríl 2007, Innlent Enn hækkar vöruverð hjá birgjum
- Fimmtudagur, 5. febrúar 2009, Innlent Vöruverð á að lækka
- Mánudagur, 8. desember 2008, Innlent Eftirstöðvar gengistryggðra lána minnka
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































