Næstu samningar gætu skilið milli feigs og ófeigs í skólastarfi

Frá þingi kennara í gær. stækka

Frá þingi kennara í gær. mbl.is/Golli

Morgunblaðið eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is

Yfirstandandi kjörtímabil hefur ekki verið tímabil átaka við samningaborðið, enda samningar löngu gerðir og við það að renna út. Það hefur hins vegar ekki farið fram hjá neinum að skólarnir hafa átt í vandræðum með að ráða til sín fólk og margur góður kennarinn hefur horfið til annarra og betur launaðra starfa.

Skólarnir hafa orðið undir í samkeppni um vinnuafl og margt bendir til þess að þeir samningar sem nú standa yfir, eða eru framundan, muni skilja á milli feigs og ófeigs í starfsemi skóla á næstu árum,“ sagði Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands (KÍ), í opnunarávarpi sínu á þingi sambandsins á Grand Hótel í Reykjavík í gær.

Bjartsýnn þrátt fyrir allt

Aðspurður segist Eiríkur þó vilja leyfa sér ákveðna bjartsýni fyrir komandi samninga. „Mér skilst að samskipti grunnskólakennara við sveitarfélögin, hingað til, gefi til kynna gagnkvæman vilja til að leysa málin í sameiningu. Ég held að menn séu búnir að upplifa svo mikið á undanförnum mánuðum og búnir að sjá á eftir svo mörgum kennurum úr þeirri stétt, að þessi gagnkvæmi vilji hafi skapast.“ Hann segir sömu lögmál gilda um aðstæður annarra hópa, bæði leik-, tónlistar- og framhaldsskólakennara. Mjög mikilvægt sé til dæmis að framhaldsskólinn komi vel út úr næstu samningum.

„Það verður með einhverjum hætti að tryggja að kjaraþróun kennara haldi í við þróun annarra hópa hjá ríki og sveitarfélögum. Við hljótum að fagna ítrekuðum yfirlýsingum menntamálaráðherra um nauðsyn þess að bæta kjör kennara en harma um leið úrtölur annarra ráðamanna í því sambandi.,“ sagði Eiríkur í ávarpi sínu. Hann segir það hafa einkennt framhaldsskólana að þar hafi kennarar náð kjörum annarra rétt á meðan setið er við samningaborðið en þeim svo hnignað í hlutfalli við kjör annarra eftir því sem frá líður. „Þetta er eitthvað sem menn þurfa að taka á,“ segir Eiríkur.

Í ræðu sinni fór Eiríkur vítt og breitt yfir sviðið og lagði ekki síður áherslu á jákvæða þætti. Til dæmis samstarf við menntamálaráðuneyti í svonefndu tíu skrefa samkomulagi og niðurstöður kannana sem sýna að kennarastéttin nýtur mikillar virðingar í þjóðfélaginu, að stór hluti þjóðarinnar vill áhrif hennar meiri. „Óskandi væri hins vegar að sú stétt sem jafnan kemur lakast út í könnunum af þessu tagi, þingmenn, tækju meira mark á þessum niðurstöðum og virtu þær í störfum sínum,“ sagði Eiríkur.

Grunnskólakennarar lægstir

Capacent Gallup kynnti þingfulltrúum niðurstöðu kjarakönnunar sem gerð var fyrir Kennarasambandið. Helstu niðurstöður voru að grunnskólakennarar eru lægstlaunaðir kennara í KÍ. Meðalgrunnlaun þeirra í október 2007 voru rúmar 242 þúsund kr. og meðalheildarlaun, að öllum aukagreiðslum meðtöldum, tæpar 286 þúsund kr. Framhaldsskólakennarar báru mest úr býtum og voru með tæpar 295 þúsund kr. en meðalheildarlaun þeirra voru tæpar 406 þúsund kr.ur. Meðalgrunnlaun leikskólakennara voru tæpar 262 þúsund kr. en meðalheildarlaun þeirra rúmar 297 þúsund kr. Meðaltal grunnlauna tónlistarkennara voru tæpar 292 þúsund kr. en meðalheildarlaun þeirra rúmar 331 þúsund kr.krónur.

Grunnskólakennarar töldu að laun þeirra þyrftu að hækka um tæp 46% til að teljast sanngjörn. Leikskólakennarar töldu að þau þyrftu að hækka um tæp 34%, tónlistarkennarar um tæp 30% og framhaldsskólakennarar um 24%.

Í heild voru karlar með að jafnaði 18% hærri laun en konur í kennarastétt. Þegar tekin voru út áhrif vinnutíma, menntunar, starfsaldurs og annarra sambærilegra þátta reyndist kynbundinn launamunur vera 5%. Það er lægsti kynbundni launamunur sem fram hefur komið í sambærilegum kjarakönnunum Capacent Gallup.

Svör bárust frá 1.811 félagsmönnum í KÍ. Ríflega 2.800 manns voru í upphaflegu úrtaki og var svarhlutfall tæplega 65%.

Sveitarfélögin standa sig ekki

Elna Katrín Jónsdóttir, varaformaður Kennarasambandsins, sagði í samtali við Morgunblaðið að launaþróun félagsmanna í KÍ sé langt í frá að vera ásættanleg, jafnvel þótt aðeins séu borin saman laun hjá hinu opinbera.

„Nú eru laun grunnskólakennara langverst, en það þýðir ekki að laun hinna séu góð. Það getur ekki verið sanngjarnt að það muni jafnvel 100 þúsund kr. á föstum launum kennara og annarra starfsmanna hins opinbera, hvort heldur hjá ríki eða sveitarfélögum, með sambærilega menntun og hreint ekki meiri ábyrgð í starfi.“

Elna sagði að það hljóti að vera rætt í framhaldi af launakönnuninni hvernig sveitarfélögin geti leyft sér að greiða kennurum miklu lægri laun en ríkið. Spyrja megi hvernig sveitarfélögin eigi að taka til sín æ stærri hluta af grunnþjónustu ef þau eru ekki samkeppnisfær um laun við ríkið.

Mannréttindasamtök kennara

Suður-Afríkumaðurinn Thulas Waltermade Nxesi er aðalritari Kennarasambands S-Afríku sem inniheldur um 65% af kennurum í landinu á öllum skólastigum eða um 235.000 manns. Fjöldi félagsmanna í samtökunum hefur rúmlega sjöfaldast á síðustu 10 árum. Þá hefur barátta hans fyrir réttindum kennara og opinberra starfsmanna í heimalandinu m.a. orðið til þess að kennarar fóru inn í heildarsamtök opinberra starfsmanna þar í landi.

Einnig er hann forseti Alþjóðasambands kennara, Education International (EI), og er sem slíkur heiðursgestur þings Kennarasambands Íslands sem fram fer 9.-11. apríl í Reykjavík. EI inniheldur 394 kennarasamtök í 171 landi og eru félagsmenn alls um 30 milljónir, allt frá leikskólakennurum til háskólaprófessora. Þing samtakanna er haldið á þriggja ára fresti. Í fyrra var það í Berlín en í Porto Alegre í Brasilíu árið 2004.

AIDS eitt af viðfangsefnunum

„Ég minni íslenska kollega mína á að þegar við hittumst árið 2004 var mikið rætt um ógnina sem stafar af HIV-AIDS víða í heiminum, ekki síst í Afríkuríkjum, fyrir menntun og almenna framþróun. HIV tekur fjölda mannslífa á hverju ári. Kennarar um allan heim þurfa að tvöfalda átak sitt í fræðslu gegn þessum faraldri,“ segir Nxesi í samtali við Morgunblaðið og leggur þá ekki síður áherslu á kennara í þróuðum löndum, þar sem HIV sækir nú mjög á.

Hann segir sjálfsmynd EI vera þá að þau séu í raun mannréttindasamtök sem berjist fyrir rétti alls fólks til þess að eiga aðgang að menntun, auk þess að berjast fyrir félagafrelsi kennara, sem víða þrengi mjög að. Þess vegna berjist samtökin m.a. fyrir ákveðnum þúsaldarmarkmiðum, þ.e. að sem flest ríki geti veitt öllum börnum innan sinna vébanda grunnmenntun árið 2015. Hins vegar sé mjög langt í að sum ríki nái þessum markmiðum.

Í menntun felast samgæði

„Ein megináhersla samtakanna eru gæði opinberrar menntunar. Opinber menntun eru samgæði en það felast hættur í því að einkavæða menntakerfi landa. Það er líklegt til að gagnast aðeins hinum efnaðri og leiða til meiri aðskilnaðar í samfélögum,“ segir hann og bætir við: „Við þurfum að líta á menntun sem fjárfestingu til framtíðar en ekki bara peningahít. Þá er það viðhorf viðskiptaheimsins, að meta alla hluti eftir því hvað er sett inn og hvað kemur út, algerlega óviðeigandi. Menntun gengur ekki út á að framleiða svo og svo mörg fagidjót fyrir mismunandi atvinnugreinar. Um það snýst menntun ekki. Það á ekki endilega við að flytja viðskiptamódel inn í skólastofurnar óbreytt, þótt þau virki ágætlega á framleiðslu dauðra hluta.“ Hann leggur áherslu á að kennarar og nemendur séu ekki bara mannauður, heldur líka mannverur. Skólastarf eigi að miðast við það öðru fremur.

Slíkar aðferðir segir hann leiða af sér að allt árangursmat verði einhæft og farið að ganga út á samræmd próf þar sem eini mælikvarðinn á þann árangur sem kennarar hafi náð með einstaka nemendur sé hvort þeir standi sig vel á nokkrum prófum.

Hlutverk kennara á Norðurlöndum

„Ég segi við kennara að þeir eigi að vera framfaraafl fyrir félagslegum breytingum. Þeir eiga að taka þátt alþjóðlegri baráttu fyrir réttindum á vinnumarkaði og mannréttindum, ekki síst réttindum barna og kvenna,“ segir Nxesi. Þetta eigi líka við um kennara í þróuðum löndum á borð við Norðurlöndin, sem eigi að þrýsta á stjórnvöld í sínum heimalöndum að beita sér fyrir betri menntun og réttindum kennara í þeim löndum þar sem á þau skortir.

Samstarf á milli þróaðra og vanþróaðra landa segir hann heldur ekki bara eiga að ganga út á peningagjafir, heldur skiptinema- og skiptikennaraverkefni, samskipti og hugmyndaflæði.

Í hnotskurn
» Kennarasamband Íslands var stofnað í nóvember 1999 og tók til starfa 1. janúar árið 2000.
» Þingið fer fram í Reykjavík 9.-11. apríl en það sitja um 300 fulltrúar 10.000 skólastarfsmanna. Yfirskrift þess er: „Kennaralaun og skólastarf í innlendu og alþjóðlegu samhengi“. Heiðursgestur er Thulas Nxesi forseti Alþjóðasambands 30 milljóna kennara í 171 landi.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Fangelsið á Litla-Hrauni.

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Plexiform Dugguvogi 11 104 simi 5553344
Póstkassar reyklitaðir, hvítir, svartir og trékassar. Bæklingavasar á borð og á ...
Freon - Kælimiðlar - 15 ára reynsla
Eigum allar helstu gerðir af kælimiðlum á lager. Beinn innflutningur frá sama fr...
Akureyri - Glæsileg íbúðagisting
Rúmgóð og vel útbúin íbúðagisting. Uppábúin rúm, handklæði, nettenging og lokaþr...
4 MANNA GÚMMÍBÁTUR
Til sölu 4 manna gúmmíbátur með 2,5 hp mótor og 3 bjargvestum. Burðargeta 400...
 
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Hjálpræðisherinn samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Sigurður...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Verslun í mosfellsbæ til sölu

Verslun til sölu Verslun í Mosfellsbæ me...