Bílstjórar fresta aðgerðum

Sturla Jónsson, í miðið, ásamt Árna Þorleifssyni, lögreglumanni og Kristjáni …
Sturla Jónsson, í miðið, ásamt Árna Þorleifssyni, lögreglumanni og Kristjáni L. Möller, samgönguráðherra. mbl.is/Júlíus

Atvinnubílstjórar hyggjast fresta aðgerðum sínum fram yfir helgi. Bílstjórarnir funduðu í gærkvöld og að sögn Sturlu Jónssonar munu þeir ganga á fund lögfræðinga fjármálaráðuneytisins og krefjast skýrra svara.

Segir Sturla að eftir þann fund verði ákveðið hvort farið verði í frekari aðgerðir. Þetta kom fram í fréttum RÚV í morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert