Endanlegt – eða ekki?

Líkan af Bakkafjöru

Líkan af Bakkafjöru Ásdís Ásgeirsdóttir

Morgunblaðið Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is
Enn er Landeyjahöfn í Bakkafjöru umdeild þótt stjórnvöld séu langt komin í að láta byggingu hennar verða að veruleika. Margskonar ástæður móta hug fólks í málinu, umhverfissjónarmið, öryggissjónarmið og hagkvæmnissjónarmið, auk áhyggna af atvinnulífi Vestmannaeyja.

Í gærkvöldi höfðu 2.324 skrifað undir yfirlýsingu, á vefsíðunni strondumekki.is, gegn Landeyjahöfn. Þar af 1.290 búsettir í Vestmannaeyjum, 492 burtfluttir Eyjamenn og 542 aðrir, samkvæmt upplýsingum frá eigendum vefsíðunnar, en undirskriftalistinn er birtur í heild sinni á síðunni. 4.036 eru búsettir í Vestmannaeyjum. 32% íbúa hafa því skrifað undir en söfnunin stendur þangað til á miðvikudag.

Búið er að bjóða út verkþætti, annars vegar bæði smíði og rekstur á nýrri ferju sem ganga skal milli Heimaeyjar og Bakkafjöru og hins vegar byggingu hafnargarða og vegagerð. 16. apríl eiga niðurstöður að liggja fyrir um hið fyrrnefnda, en 5. júní um hið síðarnefnda.

Leitað var viðbragða þingmanna allra flokka í Suðurkjördæmi og þeir meðal annars inntir álits á söfnuninni og hvort hún væri unnin fyrir gýg. Hvorki náðist í Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra né Lúðvík Bergvinsson, þingmenn Samfylkingarinnar, við vinnslu fréttarinnar.

Árni Johnsen

Ekki verður aftur snúið

„Það er mjög mikil reiði í Vestmannaeyjum vegna þess að samgönguyfirvöld og fyrrverandi samgönguráðherra brugðust í því að ljúka rannsóknum á jarðgangagerð. Beðið er eftir að því verði lokið hvað sem öðru líður,“ segir Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Margir sjómenn í Vestmannaeyjum hafi mikla ótrú á hafnargerð við Bakkafjöru. „Siglingastofnun hefur unnið mjög faglega og vel að öllu sem að þeim lýtur við þetta verkefni. Eins vel og Vegagerðin, undir forystu aðstoðarvegamálastjóra, vann alla aðra þætti illa,“ segir Árni. Núverandi samgönguráðherra hafi kokgleypt ófaglegar upplýsingar Vegagerðarinnar þegar ríkisstjórnin ákvað að ráðast í hafnargerð síðasta sumar. „Þetta er miður. Þess vegna hefur ekki verið sátt um þetta verkefni. Það er engu að síður mitt mat að þegar ríkisstjórnin hafði tekið ákvörðun um framkvæmdina varð ekki aftur snúið. Mótmælin koma of seint, en það sem liggur að baki þeim er vel skiljanlegt,“ segir Árni.

Atli Gíslason

Búinn að skrifa undir

Atli Gíslason, þingmaður Vinstri-grænna í suðurkjördæmi, hefur sjálfur skrifað undir yfirlýsinguna, á eigin forsendum, og segist styðja framtakið. „Ég taldi bætt flug og ferjusamgöngur til Þorlákshafnar næstbesta kostinn ef göngin reyndust útilokuð,“ segir Atli. Hann tekur undir með þeim sem að söfnuninni standa að aðstæður við Bakkafjöru hafi ekki verið rannsakaðar nógu vel, en segir umhverfisverndarsjónarmið einnig móta afstöðu sína. Þegar sé góð höfn í Þorlákshöfn og akstursleiðin frá Bakka til Reykjavíkur sé drjúg, sem kosti sitt.

„Ég held líka að kostnaður af höfninni sé verulega vanmetinn, þarna verði að byggja langa brimgarða út í sjó á endanum og að kostnaður við að halda rennunni opinni verði mjög mikill á hverju ári.“ Hann kveðst fylgjandi því að Vestmannaeyingar fái stórskipahöfn og kveður vel geta farið svo að þeir missi spón úr aski sínum upp í Bakkafjöru ef af höfninni verður. Atli telur ekki of seint að snúa af leið og hætta við Bakkafjöruhöfn.

Guðni Ágústsson

Getur veikt stöðu þeirra

„Ég er dálítið hissa á þessari söfnun og mér finnst hún fara heldur seint í gang. Það getur veikt stöðu Vestmannaeyja mjög í þessu máli að hefja þessa umræðu í rauninni eftir á. Ég hef áhyggjur af því að þetta muni skapa upplausn og vanda fyrir Vestmannaeyinga,“ segir Guðni Ágústsson, þingmaður og formaður Framsóknarflokksins. Hann hafi lengi talið nýjan Herjólf og góðar flugsamgöngur lausnina, en niðurstaðan sé Bakkafjöruhöfn. Eyjamenn hafi ekki tekið af skarið áður en samstaða tók að myndast um þá lausn. „Þeir létu afskrifa jarðgöngin án þess að fá fjármagn í að klára rannsóknir á þeirri lausn.“

Hann telur stórskipahöfn í Eyjum góða hugmynd en hugur Eyjamanna sjálfra ráði þar mestu um. Áhyggjur þeirra af því að þjónusta og hafnarstarfsemi færist í Bakkafjöru með höfninni segir Guðni ekki nýjar af nálinni, en dæmir ekki um hvort þær eigi við rök að styðjast. Tilraunir til að koma upp stuttri siglingaleið til Vestmannaeyja séu gerðar í þeirri trú að byggð þar styrkist þar með.

Grétar Mar Jónsson

Komið undir bæjarstjórn

„Vandamálið er að 300 metrum utan við fyrirhugaða höfn er rif, sem brýtur á í tiltölulega góðu veðri. Þess vegna hefði ég haldið að við þessa hafnargerð þyrftu brimvarnargarðar að fara miklu lengra út. Þá erum við ekki að tala um 3,6 milljarða kostnað, heldur 16-18 milljarða, samkvæmt skýrslu Gísla Viggóssonar hjá Siglingamálastofnun,“ segir Grétar Mar Jónsson, þingmaður Frjálslynda flokksins. Hann segir undirskriftasöfnunina ansi seint fram komna, en „það er undir bæjarstjórninni í Vestmannaeyjum komið hvernig hún bregst við. Ef hún skiptir um skoðun í málinu væri mögulega hægt að stoppa þetta af núna“.

Grétar segist fylgjandi stórskipahöfn í Vestmannaeyjum og hefði kosið hraðskreiðari ferju, jafnvel tvær, sem sigli milli Heimaeyjar og Þorlákshafnar, sem framtíðarlausn á samgöngum til Eyja. Þá segir hann áhyggjur af flutningi starfsemi þaðan upp á land rökréttar. Ef byrjað sé á Landeyjahöfn yfirleitt verði hún efld í framtíðinni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.

Ólafur mælist með mest fylgi

18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR FATNAÐUR Á FRÁBÆRU VERÐI - ERTU BÚIN AÐ KÍKJA? http://www.123budin.is/...
Ruggustóll
Stór og flottur ruggustóll til sölu. Verð 30 þús. kr. Uppl. mit@simnet.is....
Felgur 16" Toyota LC100 "03
Til sölu álfelgur 16" undan Toyota LC100 '03 4 stk. Verð 40.000 kr. Uppl. í síma...
VW TRANSPORTER 4X4 DÍSIL 2006
Til sölu VW TRANSPORTER KASTEN SYNCRO Dísil árg. 2006 með fjórhjóladrifi ekinn ...
 
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Menntunarsjóður mæðrastyrksnefndar reykjavíkur

MENNTUNARSJÓÐUR Mæðrastyrksnefndar Re...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...