Innlent
| Morgunblaðið
| 15.4.2008
| 5:30
| Uppfært
11:38
Ný höfn næstbesti kosturinn
„Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur á öllum tímum verið alveg samstiga um að 30 mínútna sigling milli lands og Eyja sé næstbesti kosturinn á eftir jarðgöngum,“ segir Elliði Vignisson bæjarstjóri í Vestmannaeyjum um afstöðu bæjarstjórnar til ferjusiglingar milli lands og Eyja og byggingar hafnar á Landeyjarsandi.
„Það var einróma niðurstaða okkar að jarðgöng væru langbesti kosturinn, en eftir að þau voru slegin út af borðinu, illu heilli, þá vildum við frekar horfa til þess að sigla í 30 mínútur frekar en 2 tíma og 45 mínútur.“
Elliði sagði að Vestmannaeyingar væru orðnir mjög langþreyttir á stöðu samgöngumála. Hann sagðist að nokkru leyti líta á undirskriftasöfnun gegn Landeyjahöfn sem mótmæli við hvernig haldið hefur verið á samgöngumálum Eyjamanna. Þarna fyndi fólk farveg fyrir óánægjuna. Jafnframt mætti líta á þetta sem stuðningyfirlýsingu við jarðgöng.
Rangfærslur hjá þeim sem mótmæla höfninni
Elliði sagði að sér þætti miður að sjá þær rangfærslur sem kæmu fram hjá þeim sem stæðu fyrir söfnuninni og þær drægju að nokkuð úr trúverðugleika hennar. „Því er haldið fram að það taki 40 mínútur að sigla milli lands og Eyja, en það tekur 30 mínútur. Því er haldið fram að það verði ófært stóran hluta úr árinu, en niðurstaða Siglingastofnunar er að frátafir í Landeyjarhöfn verði sambærilegar og í Þorlákshöfn. Svo er því haldið fram að Suðurlandsvegur að Selfossi sé með hættulegustu vegum á Íslandi, en það er fjarri. Þetta er beinn og breiður vegur en fólk sleppur ekki við Hellisheiði og Þrengslin þó það fari um Þorlákshöfn.“Hann sagði að í söfnunina væri blandað ósk um stórskipahöfn í Vestmannaeyjum, sem væri óháð þessu máli. Hann sagðist sjálfur eindregið getað tekið undir þá kröfu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 25. júlí 2007, Innlent „Bakkafjara kann að vera millileikur"
- Mánudagur, 23. júlí 2007, Innlent Ferðum Herjólfs ekki fjölgað frekar um verslunarmannahelgina
- Föstudagur, 20. júlí 2007, Innlent „Íslendingar hljóta að gera þá kröfu að við getum ferðast eftir þjóðvegakerfinu"
- Föstudagur, 28. mars 2008, Innlent Gerólík sýn á möguleika Landeyjahafnar
- Föstudagur, 27. júlí 2007, Innlent Elliði: Þurfum að vinna sem best út frá þessu
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
Til sölu VW Passat 2,0 árg. 05/2003, station
sjálfskiptur, álfelgur, geislaspilari, ný skoðaður. Sumardekk. Ek. 147 þús. Ve...
Toyota Yaris árgerð 2006 DIESEL !!!
Toyota Yaris Diesel árgerð 07/2006. Ekinn 79.000 km. Sjálfskiptur.
5 dyra. Sil...
Hjólbarðar til sölu
Er með fjögur Goodyear dekk gróft munstur, stærð 33x12.5R17LT ekin ca 12-15þús k...
Sumarhús til leigu - Reykholt Bisk.
Bústaður til leigu við Reykholt í Biskupstungum. Laus þessa viku (Hvítasunnuhelg...





































