Virðingarleysi fyrir fjárlögum
Ríkisendurskoðun gagnrýnir harðlega að stofnanir fari ekki eftir fjárlögum, sem Alþingi setur. mbl.is/Ómar
Ríkisendurskoðun gagnrýnir enn á ný misbresti í framkvæmd fjárlaga og virðingarleysi fyrir bindandi fyrirmælum þeirra, sem birtist bæði í hallarekstri og ónýttum fjárheimildum fjölmargra stofnana. Segir stofnunin m.a. að síendurtekin brot gegn lögum og reglum séu ólíðandi og hvetur til þess að forstöðumenn stofnana, sem ekki virða fjárlög, verði áminntir.
Ríkisendurskoðun hefur skilað skýrslu um framkvæmd fjárlaga árið 2007 og ársáætanir 2008. Segist stofnunin ítrekað á undanförnum tveimur áratugum hafa bent á ýmsa misbresti á framkvæmd fjárlaga, virðingarleysi fyrir bindandi fyrirmælum þeirra og almennt agaleysi í rekstri fjölmargra stofnana. Í þessu samhengi hafi stofnunin m.a. vakið athygli á misræmi í ákvörðunum fjárveitingarvaldsins og framkvæmdavaldsins, þ.e. að fjárveitingarvaldið ákvarði umfang opinberrar þjónustu með fjárlögum hvers árs en forstöðumenn og ráðuneyti taki sér síðan iðulega vald til að auka umfang hennar umfram lögbundnar heimildir.
Þessar og aðrar athugasemdir stofnunarinnar um framkvæmd fjárlaga hafi litlu skilað. Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Fjársýslunnar var um fjórðungur fjárlagaliða með halla í árslok 2007. Í heild nam hann um 5,8 milljörðum króna að framlagsliðum slepptum, og jókst um 2,4 milljarða frá 2006. Þá áttu um 70% allra fjárlagaliða ónýttar fjárheimildir í árslok 2007. Slíkar uppsafnaðar heimildir námu alls 21,2 milljörðum að framlagsliðum slepptum, og jukust um 1,2 milljarða frá 2006.
Ríkisendurskoðun vekur sérstaka athygli á því að ekki hefur verið tekið nægilega föstum tökum á því þegar stofnanir lenda í rekstrarvanda. Af þrettán stofnunum sem fóru meira en 4% umfram fjárheimildir árið 2006 og Ríkisendurskoðun fjallaði sérstaklega um í skýrslu sinni um framkvæmd fjárlaga 2006 voru tólf enn með halla umfram þessi mörk í árslok 2007.
Ríkisendurskoðun segir mikilvægt, að ákvæði um ábyrgð ráðuneyta á fjárreiðum ríkisstofnana verði gerð afdráttarlausari í gildandi lögum og reglum. Þá er hvatt til þess að ónýttar fjárheimildir, sem ekki stendur til að nota að fullu á nýju ári, verði felldar niður í lokafjárlögum 2007.
Bloggað um fréttina
-
Einar Þór Strand Kannski er ekki við stofnaniarnar að sakast. -
Hjalti Sæmundsson Hænan eða eggið -
Gísli Bergsveinn Ívarsson Einkavæðum meira -
Hvíti Riddarinn Ég ber virðingu fyrir eurovision-lögum -
Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm Stjórn og ábyrgðarleysi
Innlent »
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 15. apríl 2008, Innlent Algerlega ólíðandi framúrkeyrsla
- Þriðjudagur, 21. ágúst 2007, Innlent Ríkisendurskoðun gagnrýnir málflutning fjármálaráðherra
- Miðvikudagur, 15. ágúst 2007, Innlent Ríkisendurskoðun gagnrýnir agaleysi forstöðumanna stofnana og ráðuneyta
- Fimmtudagur, 13. nóvember 2008, Innlent Gerir athugasemdir við ýmis bókhaldsatriði
- Fimmtudagur, 26. febrúar 2009, Innlent Ýmsar athugasemdir við rekstur HSA
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































