Akranesstrætóslær í gegn
„Akranesvagninn gengur náttúrlega vel og er búinn að gera það síðan Strætó bs. byrjaði að keyra upp eftir. Á morgnana fara tvær rútur frá Akranesi,“ segir Einar Kristjánsson, sviðsstjóri þjónustusviðs Strætó. Viðræður standa nú yfir milli fyrirtækisins og sveitarstjórnar Borgarbyggðar þess efnis að vagninn gangi alla leið upp í Borgarnes og jafnvel að Bifröst. Þá hafa sveitarstjórnarmenn úr Ölfusi og Árborg átt viðræður við Strætó um akstur þangað. Einar segir fyrirtækið ekki hafa rætt við sveitarfélög á Reykjanesi um samstarf, fréttir af áhuga á slíku hafi hann eingöngu úr fjölmiðlum.
Hann segir margt unnið með heildstæðu leiðakerfi á stór-höfuðborgarsvæðinu. „Það er alltaf gott að skipulagningin sé á sömu hendi. Vagnar sem koma frá þessum stöðum núna keyra allir niður á BSÍ en hægt væri að beina þeim í Mjódd þaðan sem er tenging í allar áttir. Það gæti til dæmis verið sparnaður í því.“
Undirbýr útboð
Hann segir samninga sem þessa þó ekki lúta að öðru en samræmingu leiðakerfis og slíku. „Við höfum lítinn sem engan áhuga á að keyra þessar leiðir,“ segir hann en samið er við verktaka um akstur á Akranes. „Við myndum örugglega bjóða þessar leiðir út,“ segir hann.Strætó undirbýr nú gríðarstórt útboð sem auglýst verður í lok mánaðarins. „50% af okkar akstri verður auglýst en stór hluti af okkar akstri er ekki á okkar hendi þó við skipuleggjum leiðakerfið,“ segir hann.
Ekki fleiri byltingar
Einar segir fyrirtækið hætt öllum byltingum í leiðakerfismálum en miklar breytingar hafi verið gerðar á núverandi kerfi eftir að það var tekið í notkun árið 2005. Þó verði kerfið alltaf lagað að því þegar ný hverfi byggjast og gerðar á því ýmsar smábreytingar.„Fólk kemur með tillögur til okkar og þegar við förum að vinna að leiðakerfismálum athugum við hvað er raunhæft í þeim.“
Í hnotskurn
Leið númer 27 ekur milli Mosfellsbæjar og Akraness. Vagninn fer níu ferðir á dag og er fyrsta ferðin farin á tveimur vögnum. Um 300 manns nota þjónustuna á degi hverjum.Innlent »
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 5. mars 2008, Innlent Trúnaðarmenn Strætó æfir
- Fimmtudagur, 31. júlí 2008, Innlent Mikill vandi hjá Strætó
- Föstudagur, 22. febrúar 2008, Innlent Óljóst hvenær börn fá frítt í strætó
- Föstudagur, 29. febrúar 2008, Innlent Forgangsakreinar fyrir strætó og leigubíla ekki til í lögum
- Þriðjudagur, 12. ágúst 2008, Innlent Aukin fjárframlög í stað niðurskurðar
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































