Salernin eru ekki símaheld

Kennararáð Vallaskóla á Selfossi hefur sent sveitarfélaginu Árborg bréf, þar sem óskað er eftir að ráðist verði í nauðsynlegar lagfæringar á skilrúmum á milli salerna skólans til að aftra því að nemendur myndi skólafélaga sína þar með myndavélarfarsímum.

Kveikjuna að bréfinu má rekja til atviks frá því í haust, en þá myndaði nemandi skólafélaga sinn með myndavélarfarsíma, með því að teygja sig yfir skilrúm inni á salerni skólans.

Fyrirbyggjandi aðgerð

„Myndavélar eru orðnar staðalbúnaður í símum nú til dags og til þess að koma í veg fyrir að svona nokkuð geti orðið að vandamáli í framtíðinni, teljum við að það sé best að laga skilrúmin og færa um leið salernin okkar í nútímalegra horf.“ Þetta segir Eyjólfur Sturlaugsson, skólastjóri Vallaskóla.

„Ég þori ekki að fullyrða hvernig þessum málum er háttað í öðrum skólum eða hvort þetta er algengt vandamál, en ég tel fulla ástæðu til að skoða þessa hluti sérstaklega í eldri skólum landsins. Í dag eru menn mjög meðvitaðir um svona hluti við byggingu nýrra skóla.“

Getur varðað við hegningarlög

„Svona mál hafa ekki komið inn á borð til okkar en við höfum fengið símtöl út af eineltismálum með myndavélarfarsímum, en þau mál hafa flest verið leyst án okkar,“ segir Þórður Sveinsson, lögfræðingur hjá Persónuvernd.

„Það eru ekki til nein sérstök lög um notkun myndavélarfarsíma, en að vera með myndavél inni í búningsklefa eða taka myndir af fólki á salerni getur hins vegar varðað við hegningarlög, því þá er nóg að taka mynd á óviðeigandi hátt.“

Sjálfstæðismenn í minnihluta bæjarstjórnar Árborgar lögðu fram tillögu á síðasta bæjarstjórnarfundi um að ráðist yrði í umræddar lagfæringar. Þar segir að mikilvægt sé að aðbúnaður sé með þeim hætti að ekki sé augljós hætta á einelti. Tillaga minnihlutans var felld, en Fjölskyldumiðstöð hefur verið falið að leysa málið í samvinnu við Vallaskóla og er sú vinna í gangi.

Í hnotskurn
Hver sem með lostugu athæfi særir blygðunarsemi manna eða er til opinbers hneykslis skal sæta fangelsi allt að 4 árum, en fangelsi allt að 6 mánuðum eða sektum ef brot er smávægilegt
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert