Harma tillögur um að fækka fulltrúum stúdenta í háskólaráði
Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, hefur sent frá sér ályktun og skýrslu vegna frumvarps til laga um opinbera háskóla sem tekið verður fyrir á Alþingi í dag. Hvetur félagið þar ráðamenn þjóðarinnar til að vanda sérlega til verka við afgreiðslu frumvarpsins.
Í ályktuninni kemur fram að félagið harmi að nýtt frumvarp til laga um opinbera háskóla feli í sér fækkun fulltrúa stúdenta í háskólaráði og að í frumvarpinu sé háskólaráði veitt það lögformlega hlutverk að koma með tillögur um hækkun skrásetningargjalda við Háskóla Íslands.
Skýrslan, sem birt er á heimasíðu Vöku hefur verið kynnt stúdentaráði Háskóla Íslands og send öllum þingmönnum.
Ályktun félagsins fer í heild sinni hér á eftir:
„Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, harmar að nýtt frumvarp til laga um opinbera háskóla feli í sér fækkun fulltrúa stúdenta í háskólaráði.
Háskólasamfélagið samþykkti nýlega að fulltrúar stúdenta í háskólaráði yrðu tveir, Einnig var samþykkt að stúdentar fengju seturétt í öllum helstu nefndum, og var þar miðað við fimmtung setufulltrúa. Með þessari breytingu á skipan háskólaráðs fækkar fulltrúum nemenda úr tveimur af tíu niður í einn af sjö, eða úr 20% nefndarmanna niður í 14.3%. Um 80% þeirra sem starfa innan veggja Háskóla Íslands eru stúdentar, og telur Vaka því eðlilegt að fulltrúar þeirra hafi raunverulegt vægi á æðstu stjórnunarstigum skólans.
Vaka leggur til að háskólaráð verði framvegis skipað átta fulltrúum; tveimur frá stúdentum, tveimur frá háskólasamfélaginu, tveimur frá menntamálaráðuneytinu og tveimur völdum af þeim fulltrúum sem fyrir eru í háskólaráði.
Vaka harmar einnig að í frumvarpinu sé háskólaráði veitt það lögformlega hlutverk að koma með tillögur um hækkun skrásetningargjalda við Háskóla Íslands, enda eru skrásetningargjöld ekkert annað en skólagjöld að mati Vöku.
Vaka fagnar því að löggjafinn boði breytingar sem félagið hefur lengi barist fyrir, til að mynda skilvirkari stjórnsýslu, faglegri ráðningum deildarforseta og fleiri breytingum sem frumvarpið felur í sér.
Vaka hvetur ráðamenn þjóðarinnar að vanda til verka við afgreiðslu frumvarpsins."Bloggað um fréttina
-
Björgvin Guðmundsson Skólagjöld bakdyramegin -
Ingólfur Birgir Sigurgeirsson Vaka lætur verkin tala og fer alla leið
Innlent »
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 6. maí 2008, Innlent SHÍ fagnar að hvergi sé talað um upptöku skólagjalda í frumvarpi
- Fimmtudagur, 5. febrúar 2009, Innlent Kosið í Háskóla Íslands
- Fimmtudagur, 7. febrúar 2008, Innlent Æfingabúðir?: Pólitísk tengsl „mýta“
- Fimmtudagur, 2. apríl 2009, Innlent Enn óvíst um sumarönn
- Miðvikudagur, 23. janúar 2008, Innlent Framboðslisti Vöku kynntur
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































