New York Times fjallar um íslenskt efnahagslíf

Greinin um Ísland var á forsíðu fréttavefjar blaðsins í dag.
Greinin um Ísland var á forsíðu fréttavefjar blaðsins í dag.

Bandaríska blaðið The New York Times hefur nú bæst í hóp þeirra erlendu fjölmiðla sem fjalla sérstaklega um stöðuna í íslensku efnahagslífi. Var fréttin á forsíðu  fréttavefjar blaðsins í morgun og ber fyrirsögnina: Ísland, lítil orkustöð, missir afl.

Segir blaðið m.a. að langt vaxtarskeið hafi nú skyndilega endað með sársaukafullum hætti, hruni gjaldmiðilsins, vaxandi verðbólgu, háum vöxtum og spá um fyrstu efnahagslægðina síðan 1992.

Grein NYT.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert