„Megum ekki gleyma hatursglæpum"
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is
UM 30% frétta fjölmiðla um fólk af erlendum uppruna, sem hingað kemur til þess að vinna, voru í fyrra af neikvæðum toga. Þetta kemur fram í niðurstöðum greiningar fyrirtækisins Creditinfo á umfjöllun um innflytjendur og erlent vinnuafl. Niðurstöðurnar voru kynntar í gær á ráðstefnu um umfjöllun fjölmiðla um innflytjendur og afbrot, sem Alþjóðahús, Blaðamannafélag Íslands, Kópavogsbær og fleiri aðilar stóðu að. Um 15% fréttanna töldust mjög eða frekar jákvæðar.
Staðan var örlítið önnur þegar kom að fréttum fjölmiðla um innflytjendur. Þar reyndust um 30% fréttanna af jákvæðum toga en um 28% frekar eða mjög neikvæðar.
Rannveig Þórisdóttir, deildarstjóri upplýsinga- og áætlanadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, fjallaði um afbrot útlendinga og velti því upp hvort þau væru öðruvísi en afbrot sem Íslendingar fremdu.
Fram kom í máli Rannveigar að hegningarlagabrotum á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað á árabilinu 2001-2007. „En hlutfall erlendra ríkisborgara sem fremja slík brot jókst meira á árinu 2007 en hlutfall Íslendinga,“ segir Rannveig. Væntanlega sé hluti skýringarinnar að útlendingum hefur fjölgað hér á landi.
Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, fjallaði í erindi sínu um afbrot, staðalmyndir og innflytjendur.Helgi sagði að margir hér á landi hefðu áhyggjur af því að vaxandi straumur útlendinga hingað til lands myndi síðar leiða til hærri glæpatíðni „og að samfélagið muni breytast til hins verra. En við megum í þessu samhengi ekki gleyma afbrotum sem útlendingar verða fyrir í okkar samfélagi vegna uppruna síns,“ sagði Helgi og benti á að hatursglæpir hefðu víða skapað vanda erlendis.
Hann vék að fjölmiðlum og sagði að spyrja þyrfti hvort framsetning þeirra á fréttum ýtti undir tortryggni gagnvart útlendingum, sem næði einnig til löggæslunnar. „Fylgjumst við meira með útlendingum en öðrum. Lenda þeir frekar í prófíl?“ spurði Helgi. Hann minnti á að innflytjendur á Íslandi kæmu hingað að mestu leyti til vegna frumkvæðis héðan. „Þannig að ábyrgð á meðferð þeirra hlýtur líka að liggja að miklu leyti hjá okkur sjálfum.“
Innlent »
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 19. apríl 2008, Innlent Hvenær skiptir þjóðerni máli?
- Föstudagur, 18. apríl 2008, Innlent Fleiri erlendir afbrotamenn
- Sunnudagur, 20. apríl 2008, Innlent Bitnar mest á börnunum
- Föstudagur, 19. október 2007, Innlent Vaxandi fordómar
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































