Skutlar bílnum heim úr bænum

Svavar Ólafsson.
Svavar Ólafsson.

„Ef þú hefur verið að gera þér glaðan dag, kannski verið úti með makanum og fengið þér í glas svo hvorugt treystir sér til að aka, þá þarf ekki nema hringja í Skutlum bílnum og atvinnubílstjóri er kominn á staðinn með hraði og ekur bílnum og eigandanum heim,“ segir Svavar Ólafsson, eigandi að Skutlum bílnum.

Fyrirtækið hóf starfsemi um helgina og stendur þjónusta þess íbúum höfuðborgarsvæðisins og nálægum sveitarfélögum til boða. Verð innan höfuðborgarsvæðisins er á bilinu 4.000 til 8.000 kr., en t.d. kostar um 16.000 kr. að láta keyra bíl sinn til Selfoss.

Nánar er rætt við Svavar í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert