Útflutningsráð sjái um Promote Iceland

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra telur vel koma til greina að fela Útflutningsráði að annast verkefnið Promote Iceland, sameiginlegan vettvang ímyndar- og kynningarmála sem ímyndarnefnd forsætisráðherra lagði til að yrði stofnuð og kynnt var á mánudag.

Ingibjörg nefndi þetta í ræðu sinni á ársfundi Útflutningsráðs en ekki hefur verið ákveðið hvar vista eigi verkefnið Promote Iceland. Hún sagði það skoðun sína að í samræmingu aðgerða og upplýsingagjafar stjórnvalda ætti Útflutningsráð að leika aukið hlutverk. Ráðið hefði eflst á undanförnum árum og þá einkum eftir að samstarfið við utanríkisráðuneytið var aukið.

Ímyndarnefndin lagði til meiri skilvirkni og Ingibjörg sagði utanríkisráðuneytið ætla að bregðast við því þegar á þessu ári. Sameina ætti skrifstofu menningar- og upplýsingamála og skrifstofu viðskiptaþjónustu og ferðamála (VUR). Þá yrði starfssvið viðskiptafulltrúanna, sem eru alls 10, skerpt og það með skýrari hætti látið ná til menningar-, landkynningar- og ímyndarmála.

Ingibjörg Sólrún benti í sinni ræðu jafnframt á þær tillögur ímyndarnefndarinnar, sem Svafa Grönfeltd leiddi, að svæðisskrifstofur Ferðamálastofu í Frankfurt, Kaupmannahöfn og New York yrðu lagðar niður í núverandi mynd og sú starfsemi tvinnuð annarri kynningarstarfsemi á vegum stjórnvalda í viðkomandi borgum. Ingibjörg sagði Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra fyrir sitt leyti hafa lýst því yfir að hann vildi eiga meira samstarf við utanríkisþjónustuna um landkynningarmál en verið hefði.

Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri segir að skýrsla ímyndarnefndarinnar hafi verið mjög tímabær. Í skýrslunni birtist lýsing á brotakenndri mynd íslenskra kynningarmála, sem ljóst sé að þurfi að samstilla og setja í skilvirkari farveg.

„Sú tillaga nefndarinnar að koma á fót vettvangi þar sem aðilar sem málið varða myndu starfa saman að því að móta, styrkja og koma á framfæri skýrri, jákvæðri ímynd af landi og þjóð, er vissulega áhugaverð,“ segir Ólöf en telur ekki tímabært að ákveða hér og nú hvar vista eigi verkefnið Promote Iceland. Eftir sé að ákveða hvort þessi leið verði farin og hvernig hún verði útfærð.

„Hins vegar er ég alveg sammála því að betur þurfi að stilla saman strengi í landkynningarmálum. Ég tel að margvíslegar leiðir séu færar og er Ferðamálastofa algjörlega reiðubúin að koma að þeirri nauðsynlegu umræðu sem nú fer í gang um þessi mál, enda íslensk ferðaþjónusta í gegnum tíðina öflugasti vettvangur almennrar landkynningar. Í mínum huga er því alveg ljóst að atvinnugreinin mun áfram þurfa öflugan málsvara og sterka aðkomu í markaðssetningu landsins á erlendri grundu,“ segir Ólöf Ýrr.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hillusamstæða
Hillusamstæða 28 ára gömul hillusamstæða til sölu, var keypti í Heimilisprýði á...
Zimmermann píanó
Til sölu vel meðfarið Zimmermann píanó. Verð 125.000. Upplýsingar í síma 84589...
Lyngborgir.is. Sumarhúsalóðir
Til sölu eignarlóðir í Grímsnesi. Stærðir 5800 fm-8700 fm gott verð. 75 km frá ...
Sorptunnugrind
Sorptunnan lítur mun betur út og þú getur fest grindina við vegg eða stétt þanni...
 
Forval fit

Mynd af auglýsingu ...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Samkoma - salt
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grensáskirkju Samk...
Námsstyrkir - bandalag kvenna í reykjavík

Námsstyrkir Bandalag kvenna í Reyk...