Vaxtalækkunin sýnir styrk Íbúðalánasjóðs

Lækkun á útlánsvöxtum Íbúðalánasjóðs er mjög jákvæð og sýnir styrk sjóðsins, að sögn Ingibjargar Þórðardóttur, formanns Félags fasteignasala. „Ég tel að vaxtalækkun Íbúðalánasjóðs í gær staðfesti það sem við fasteignasalar höfum haldið fram frá því bankarnir hófu áróður gegn sjóðnum, hve mikil kjölfesta hann er á fasteignamarkaðinum,“ segir Ingibjörg.

Íbúðalánasjóður lækkaði útlánsvexti sína í gær um 0,05 og 0,3 prósentustig í kjölfar útboðs á íbúðabréfum síðastliðinn föstudag.

Ingibjörg segist telja mjög jákvætt að Íbúðalánasjóður geti lækkað vexti þrátt fyrir úrtöluraddir, stýrivaxtahækkun og neikvæðar fréttir af viðskiptum bankanna erlendis. Og þrátt fyrir að lánshæfismat Íbúðalánasjóðs hafi verið lækkað í síðustu viku. Því sé ástæða til að fagna vaxtalækkun nú.

„Hins vegar er galli hvað hámarkslán Íbúðalánasjóðs eru lág og einnig að það skuli enn vera miðað við brunabótamat þegar lánsfjárhæð er ákvörðuð. Þessu þarf að breyta og taka mið af markaðsverði. Þá hefur það áhrif á fasteignamarkaðinn að margir eru að bíða eftir afnámi stimpilgjaldanna. Og svo hefur hin óábyrga lækkunarspá Seðlabankans einnig sitt að segja. Hún skekur markaðinn. Fasteignaviðskipti eru eitt af tannhjólunum í þjóðfélaginu og það er makalaust að ráðast að rótum þess með þeim hætti sem Seðlabankinn hefur gert,“ segir Ingibjörg.

Í hnotskurn
» Eftir ákvörðun Íbúðalánasjóðs í gær eru vextir af nýjum lánum með uppgreiðsluákvæði 5,2% en voru 5,5%. Vextir af lánum án uppgreiðsluákvæðis eru 5,7% en voru 5,75%.
» Meiri munur er nú á útlánsvöxtunum eftir því hvort um er að ræða uppgreiðsluálag eða ekki, því vaxtaálag vegna uppgreiðsluáhættu var í gær hækkað úr 0,25% í 0,5%.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert