Búseti frestar nýframkvæmdum fyrir norðan
Stærsta fjölbýlishúsið utan höfuðborgarsvæðisins, við Kjarnagötu á Akureyri. Íbúðir í húsinu eru 58 og afhenti Búseti þær síðustu fyrr á árinu.
Búseti afhenti fyrr á þessu ári síðustu íbúðirnar í nýju fjölbýsihúsi við Kjarnagötu í Naustahverfi á Akureyri, en það er stærsta fjölbýlishús utan höfuðborgarsvæðisins. Í húsinu eru 58 íbúðir og á sama byggingarreit er hafin bygging 24 íbúða í viðbót.
Félagið áformaði byggingu 25-30 íbúða á reit við Hólmatún, auk þess sem önnur svæði á Akureyri hafa verið í skoðun, en ekki verður af þeim framkvæmdum strax.
Benedikt Sigurðarson, framkvæmdastjóri Búseta á Norðurlandi, segir þróun rekstrar og efnahags félagsins endurspegla þær breytingar sem orðið hafa í rekstrarumhverfi þess síðustu mánuði. „Þegar aðalfundur Búseta á Norðurlandi var haldinn á árinu 2007 voru horfur og spár í efnahagsmálum afar ólíkar því sem þær eru um þessar mundir. Upp úr miðju síðasta ári var spáð áframhaldandi háu húsnæðisverði og góðum aðgangi að fjármagni – á alþjóðavettvangi. Auk þess hafði ný ríkisstjórn gefið fyrirheit um aukinn sveigjanleika á húsnæðismarkaðnum – m.a. með sérstakri nefndaskipan félagsmálaráðherra,“ segir Benedikt á heimasíðu félagsins.
„Fjármagnskostnaður og verð nýbygginga hafði að vísu hækkað verulega. Þá gerðum við hjá Búseta á Norðurlandi metnaðarfullar áætlanir um frekari sókn og þróun bygginga og þjónustu félagsins.
Nú er öldin nokkuð önnur; svartsýnustu spár gera ráð fyrir 15-30% raunlækkun húsnæðis á næstu tveimur árum. Stýrivextir hækka enn og þar með framkvæmdafjármögnun. Bankakerfið hefur fryst ný lán – amk. í bili og enn er beðið eftir niðurstöðum nefndar félagsmálaráðherra og þróun hámarkslána og lánaflokka hjá Íbúðalánasjóði lætur á sér standa. Ef peningakrísan í bönkunum verður viðvarandi kann Búseti að þurfa að fresta öllum nýjum framkvæmdum og það geta auk þess orðið einhverjar tafir á frágangi yfirstandandi bygginga.“
Innlent »
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 26. júní 2008, Innlent Benedikt frestar sundi
- Miðvikudagur, 15. október 2008, Innlent Sparisjóður Svarfdæla frestar áformum um hlutafjárvæðingu
- Mánudagur, 23. febrúar 2009, Innlent Frestar endurskoðun á vaxtálagi húsnæðislána
- Þriðjudagur, 4. mars 2008, Innlent Nýframkvæmdum Alcoa ekki lokið
- Fimmtudagur, 12. júní 2008, Innlent Stofna húsaleigufélög vegna skulda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































