Landsmönnum fjölgaði um 1,9% árið 2007

stækka

AP

Hinn 1. janúar 2008 voru landsmenn 313.376 og fjölgaði um 1,9% á árinu 2007. Fólksfjölgun var þó minni en árin tvö þar á undan en árið 2006 var hún 2,6%, sem er með því mesta sem mælst hefur. Fólksfjölgun undanfarinna ára má öðru fremur rekja til fólksflutninga til landsins.

Ef fólksfjöldaþróun á einstökum landsvæðum er skoðuð kemur í ljós að íbúum fjölgar mest í þéttbýli í nágrenni höfuðborgarsvæðinu. Þannig er fólksfjölgun mikil á Suðurnesjum og í þéttbýlisstöðum á Suður- og Vesturlandi. Á Austurlandi fækkaði íbúum árið 2007 eftir mikla fólksfjölgun árin þar á undan. að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.

Íslenska þjóðin er fremur ung ef miðað er við nágrannalöndin. Hlutfall aldraðra er lægra hér á landi en í mörgum Evrópuríkjum en hlutfall barna að sama skapi hærra. Athyglisvert er að hlutfall fólks á vinnufærum aldri hefur aldrei verið hærra en nú. Það má að einhverju leyti rekja til þess að flestir erlendir ríkisborgarar sem búsettir eru hér á landi eru á þrítugs- og fertugsaldri. Fá börn og hverfandi fáir aldraðir einstaklingar eru hins vegar með erlent ríkisfang.

6,8% af heildarmannfjölda erlendir ríkisborgrar

Erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað hérlendis undanfarin ár. Hlutfall þeirra af heildarmannfjölda var 6,8% 1. janúar 2008 en 6% ári áður. Til samanburðar var það hlutfall 4,6% í byrjun árs 2006.

Hlutfall erlendra ríkisborgara er nú orðið hærra en í mörgum nágrannalöndunum. Þó ber að hafa í huga að það felur ekki í sér að hlutfall innflytjenda sé hærra hér á landi þar sem nágrannalöndin eiga sér lengri sögu innflytjenda og því má gera ráð fyrir því að hærra hlutfall þeirra hafi öðlast ríkisfang í nýja landinu, samkvæmt vef Hagstofu Íslands.

Hagtíðindi Hagstofu Íslands 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
ROTÞRÆR, VATNSGEYMAR OG ALVÖRU MOLTUGERÐ
Rotþrær, vatnsgeymar og alvöru moltugerðarkassar Rotþr...
GLÆSILEGIR
GLÆSILEGIR Teg. MYSTERY - Hægt að nota ÁN HLÝRA - Glæsileg blúnda, fæst í A, B, ...
Freon - Kælimiðlar - 15 ára reynsla
Eigum allar helstu gerðir af kælimiðlum á lager. Beinn innflutningur frá sama fr...
Burðarpokar og burðarsjöl www.hondihond.is
Fullt hús af burðarpokum og burðarsjölum. Henta vel fyrir börn frá 0-3 ára. O...
 
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Útboð ljósleiðaravæðing

Skeiða- og Gnúpverjahreppur Útboð S...
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...