Verða að veita aðgang að samningi um tónlistarhús
Hæstiréttur hefur hafnað þeirri kröfu Eignarhaldsfélagsins Portus, Reykjavíkurborgar og Ríkiskaupa að fella skuli úr gildi úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Með úrskurðinum var Reykjavíkurborg og Ríkiskaupum gert skylt að veita Fasteign og Klasa aðgang að samningi við Portus um byggingu tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar á austurbakka Reykjavíkurhafnar en fyrirtækin tvö tóku þátt í forvali vegna tónlistarhússins.
Austurhöfn-TR ehf., sem er í eigu íslenska ríkisins og Reykjavíkurborgar, gerði samning við Portus í mars árið 2006 um byggingu tónlistarhúss. Í kjölfarið óskuðu hin Fasteign og Klasi eftir því að fá afrit af samningnum en því var synjað. Synjunin var kærð til úrskurðarnefndar um upplýsingamál sem kvað upp þann úrskurð, að skylt væri að veita fyrirtækjunum aðgang að samningnum.
Portus, Reykjavíkurborg og Ríkiskaup töldu úrskurðinn ólögmætan og kröfðust þess fyrir dómi að hann yrði felldur úr gildi á þeim forsendum, að í samningnum komi fram upplýsingar um atvinnu- og viðskiptaleyndarmál Portus. Að auki væri þar að finna ýmsar upplýsingar, sem varða mikilvæga fjárhags- og viðskiptahagsmuni samstarfsaðila félagsins, svo sem hönnuða og listamanna.
Héraðsdómur Reykjavíkur og síðan Hæstiréttur féllust hins vegar ekki á þessi sjónarmið. Vísar Hæstiréttur m.a. til þess, að samningurinn falli undir gildissvið upplýsingalaga og rökstuðningur úrskurðarins fullnægi þeim kröfum, sem gerðar verði til rökstuðnings úrskurða nefndarinnar. Segir Hæstiréttur ekki á færi dómstóla, að fjalla um takmörkun á upplýsingarétti vegna einkahagsmuna eða leggja mat á þýðingu trúnaðarákvæða í samningnum en samningurinn var ekki lagður fram í málinu.
Hæstiréttur klofnaði í málinu og taldi einn dómari af fimm, Jón Steinar Gunnlaugsson, að Portus þurfi að una því að Fasteign og Klasi fái aðgangur að samningi Portus við Austurhöfn-TR.
Innlent »
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 27. apríl 2007, Innlent Úrskurður um samning um tónlistarhús stendur
- Miðvikudagur, 31. desember 2008, Innlent Húsið bíður óklárað
- Mánudagur, 16. mars 2009, Innlent Í samræmi við fjárreiðulög
- Fimmtudagur, 9. október 2008, Innlent Tónlistarhús í óvissu
- Þriðjudagur, 17. mars 2009, Innlent Skylt að fjármagna Tónlistarhúsið
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































