Vetnisljósavél tekin í notkun í Eldingu
Fimm árum eftir að fyrsta almenna vetnisstöðin í heiminum var tekin í notkun hérlendis, á sumardaginn fyrsta 2003, brjóta Íslendingar á ný í blað í vetnismálum og taka í notkun vetnisljósavél í hvalaskoðunarbátnum Eldingu en til þessa hafa vetnistilraunir á sjó eingöngu verið hernaðarlegs eðlis og upplýsingar um þær mjög takmarkaðar. Eldingarverkefnið er hluti af svokölluðu SMART-H2 (Sustainable Marine and Road Transport, Hydrogen in Iceland) verkefni sem hófst formlega í nóvember í fyrra.
„Losun gróðurhúsalofttegunda er meiri á hvert mannsbarn á Íslandi en í flestum öðrum löndum heims. Stór hluti af þeirri losun fellur til við eldsneytisbruna. Við þurfum að finna nýjar lausnir. Þetta verkefni er prýðilegt dæmi um frumkvæði Íslendinga í rannsóknum og nýtingu visthæfs eldsneytis,“ sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra m.a. þegar hún hleypti verkefninu formlega af stokkunum úr stafni Eldingarinnar við Ægisgarð í morgun, að því er segir í tilkynningu.
Markmiðið með vetnisverkefninu um borð í Eldingu er að öðlast skilning á því hvaða áhrif sjávarhreyfing, salt og aðrir álagsþættir hafa á vetnisljósavélina, eða efnarafalann, sem jafnframt er studdur með rafgeymum og því um svokallað tvinnkerfi (hybrid) að ræða. Alls getur kerfið framleitt 10 kW, sem uppfyllir alla raforkuþörf Eldingarinnar, og því kemur kerfið að fullu í stað dísilljósavélarinnar sem var um borð í skipinu, samkvæmt tilkynningu.
„Kerfið um borð í Eldingu er hannað og smíðað af innlendum aðilum, fyrir utan efnarafalann sjálfan sem er smíðaður erlendis. Jafnframt hefur verið reist dreifistöð á Ægisgarði sem mun sjá Eldingunni fyrir vetni. Fyrirtækið Icelandic Hydrogen byggir dreifistöðina en það er nú að hasla sér völl á þessu sviði, jafnt innanlands sem utan."
Bloggað um fréttina
-
Herdís Sigurjónsdóttir Jákvætt skref -
Kjartan Pétur Sigurðsson HVALASKOÐUN MEÐ ELDINGU - MYNDIR
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 23. janúar 2008, Innlent Umhverfisvænni hvalaskoðun
- Sunnudagur, 22. júlí 2007, Innlent Eldingu laust í þotu Iceland Express
- Miðvikudagur, 9. júlí 2008, Innlent Eltu hvalafangara
- Mánudagur, 16. mars 2009, Innlent Tvær vélar urðu fyrir eldingu
- Þriðjudagur, 3. júlí 2007, Innlent Fyrsta björgunarflug Gnár
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju





































