Umhverfisviðurkenningar afhentar
Þórsteinn Ágústsson, framkvæmdastjóri Sólarræstingar tók við Kuðungnum úr hendi Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra.
Sólarræsting hlaut Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, við athöfn í Perlunni í dag, á Degi umhverfisins. Við sama tækifæri voru nemendur úr Lýsuhólsskóla og Fossvogsskóla útnefndir varðliðar umhverfisins. Þá var sýningin Vistvænn lífsstíll opnuð þar sem 25 fyrirtæki, stofnanir og félög sýna vistvænar vörur og þjónustu.
Kuðungurinn er viðurkenning á því framlagi sem viðkomandi fyrirtæki hefur veitt til umhverfismála og öðrum fyrirtækjum hvatning til að leggja enn meira að mörkum í umhverfismálum. Það var Þórsteinn Ágústsson, framkvæmdastjóri Sólarræstingar sem tók við Kuðungnum úr hendi Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra.
Nemendur úr Lýsuhólsskóla og Fossvogsskóla voru útnefndir varðliðar umhverfisins við athöfn í Perlunni í dag. Varðliðar umhverfisins er verkefnasamkeppni á vegum umhverfisráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur. Tilgangur keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði. Tvö verkefni fengu viðurkenningu:
Karen Hjartardóttir, nemandi í 10. bekk Lýsuhólsskóla á Snæfellsnesi, bjó til Grænfánaspilið. Spilið leiðir fólk í gegnum ýmis umhverfisverkefni á skemmtilegan hátt og markmiðið er að flagga Grænfánanum. Það hefur Lýsuhólsskóli gert síðan árið 2003 en markvisst hefur verið unnið að umhverfismálum í skólanum í anda Staðardagskrár síðan árið 2001.
Síðara verkefnið fjallar um veggjakrot og umgengni í skólahverfinu og var
unnið af nemendum í 5., 6. og 7. bekk Fossvogsskóla. Fossvogsskóli hefur líkt og
Lýsuhólsskóli verið í fararbroddi grunnskóla landsins í umhverfismennt. Í
verkefninu er tekið á umgengismálum í hverfinu með aðstoð nemenda. Nemendur
kortlögðu veggjakrot í hverfinu, skemmdarverk alls konar og slæma umgengni.
Reiknaður var út kostnaður við að mála yfir veggjakrot í hverfinu og það tjón
sem hverfið verður fyrir sökum þessa. Unnin voru póstkort úr endurunnu efni og á
þau skrifuð ýmis konar slagorð tengdum góðri umgengni við náttúruna og
nánasta
umhverfi og þau borin út í til íbúa í hverfinu, samkvæmt því sem fram kemur á vef umhverfisráðuneytisins.
Bloggað um fréttina
-
Herdís Sigurjónsdóttir Stelpurnar einar í kotinu -
Ásgeir Eiríksson Dagur umhverfisins -
Ingibjörg Hinriksdóttir Glæpur gegn framtíðinni -
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir "Á DEGI UMHVERFISINS" er tilkynnt um nýja bæjarstjórn í Bol........
Innlent »
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 25. apríl 2007, Innlent Dagur umhverfisins er í dag - Fimm grunnskólar og Bechtel fengu viðurkenningu
- Föstudagur, 25. apríl 2008, Innlent Vistvænn lífsstíll Reykvíkinga kannaður
- Laugardagur, 25. ágúst 2007, Innlent Fyrsta brautskráning meistaranema við kennslufræði- og lýðheilsudeild HR
- Föstudagur, 23. mars 2007, Innlent Samráð í umhverfismálum vekur athygli
- Miðvikudagur, 21. nóvember 2007, Innlent Eimskip kostar hjálmaverkefni Kiwanis næstu þrjú árin
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































