Nýir gsm sendar settir upp
Fjórðungur þeirra GSM senda sem ráðgert er að tæknimenn Vodafone setji upp á árinu eru kominn í notkun. Alls hafa 35 nýir GSM sendar verið gangsettir um allt land og tryggt GSM samband á fjölmörgum svæðum sem ekki höfðu notið slíkrar þjónustu fyrr.
Í fréttatilkynningu frá Vodafone segir: „11 nýir GSM sendar voru gangsettir í byrjun vikunnar en aldrei hafa fleiri sendar verið gangsettir í einni og sömu vikunni. Flestir þessara senda eru á Vestfjörðum, t.d. í Súgandafirði, á Bolungarvík og Ísafirði en einnig voru nýir sendar gangsettir á Norðurlandi, t.d. á Siglufirði, Ólafsfirði og Skollahnjúk í S-Þingeyjarsýslu.
Meðfylgjandi myndir voru hins vegar teknar í Vestmannaeyjum, en þar voru settir upp tveir sendar sem tryggja GSM samband langt á haf út og styrkja sambandið í Eyjum. Þá var nýr sendir gangsettur í Flatey á Breiðafirði fyrir fáeinum dögum og annar á Klakki við Grundarfjörð. Sá síðarnefndi tryggir þjónustu m.a. í Kolgrafafirði og við Kvíabryggju sem hingað til hefur ekki verið í GSM sambandi.
Sams konar bylting hefur orðið á mörgum öðrum svæðum á landinu á þessu ári. Til dæmis er GSM samband nú komið á Kjöl og Sprengisand, þrír nýir sendar tryggja nú GSM samband í Fljótum - Siglfirðingum til mikillar ánægju, Gemlufallsheiði (milli Flateyrar og Þingeyrar) komst í GSM samband fyrir skemmstu þegar nýr sendir var gangsettur í grennd við Holt í Önundarfirði - og nýr langdrægur sendir á fjallinu Strúti tryggir GSM samband á Arnarvatnsheiði, vestanverðum Langjökli og í umlykjandi sveitum. Þá komst Hólasandur, norðan Mývatns, í GSM samband í fyrsta sinn á dögunum og áfram mætti telja.
Vodafone mun halda uppbyggingunni áfram út árið og á næstu vikum munu íbúar á völdum svæðum finna áþreifanlega breytingu. Uppsetning á langdrægum sendi á Bolafjalli við Bolungarvík er ráðgerð á næstu dögum en langdrægu sendarnir eiga að tryggja GSM samband í allt að 100 km á haf út, líkt og nýir sendar á Húsavíkurfjalli og Steinnýjastaðafjalla (ofan Skagastrandar) gera nú þegar. "
Í tilkynningunni er einnig tekið fram að allir GSM notendur hringt neyðarsímtöl í 112 þar sem GSM þjónusta er á annað borð í boði.
Bloggað um fréttina
-
Kristinn Kjartansson GSM dreifing Vodafone -
Ingibjörg Hinriksdóttir Reikisamningar milli símafyrirtækja
Innlent »
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 30. apríl 2008, Innlent GSM-sendar settir upp
- Föstudagur, 27. júní 2008, Innlent GSM sendum fjölgar
- Föstudagur, 27. júní 2008, Innlent Síminn setur upp GSM senda
- Föstudagur, 30. maí 2008, Innlent 260 þúsund símtöl á klukkustund
- Föstudagur, 19. desember 2008, Innlent GSM-uppbyggingu Vestfjarða lokið
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur






































