Segir yfirlýsingu a-lista ótrúlega samsuðu af rangfærslum

Grímur Atlason.
Grímur Atlason.

Grímur Atlason, sem senn lætur af störfum sem bæjarstjóri Bolungarvíkur, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir yfirlýsingu a-lista ótrúlega samsuðu af rangfærslum.

„Vegna yfirlýsingar a-listans í Bolungarvík um meintan alvarlegan trúnaðarbrest í bæjarstjórn Bolungarvíkur vill undirritaður koma eftirfarandi á framfæri: Yfirlýsing a-listans er ótrúleg samsuða af rangfærslum þar sem sannleikurinn er togaður og beygður að þörfum þeirra sem eiga vondan málstað að verja. Hér er um söguskoðun að ræða sem stenst ekki nánari skoðun. Pólitískt kjörnir fulltrúar munu án efa tjá sig frekar um þessa yfirlýsingu en ég sé mig knúinn til þess að leiðrétta hrein og klár ósannindi um efni og tilefni fundar sem oddviti a-listans átti með undirrituðum fyrir tæpum tveimur vikum.

Í yfirlýsingu a-listans segir: Þegar fráfarandi bæjarstjóri gaf út yfirlýsingu varðandi staðsetningu Innheimtustofnunar sveitarfélaga á Flateyri átti forseti bæjarstjórnar (oddviti A-listans) fund með bæjarstjóra og lýsti óánægju sinni með viðbrögð bæjarstjóra. Sú yfirlýsing bæjarstjóra endurspeglaði ekki skoðun meirihluta bæjarstjórnar í því máli enda hafði bæjarstjórn ekki ályktað um málið. Þegar svo oddviti K- lista og jafnframt formaður bæjarráðs ber blak af bæjarstjóra á opinberum vettvangi þrátt fyrir að oddviti A - listans hefði sett ofan í við hann, keyrir um þverbak. Hér verður alvarlegur trúnaðarbrestur milli aðila.

Anna Guðrún Edvardsdóttir oddviti a-listans átti engan fund með undirrituðum þar sem yfirlýsing undirritaðs um staðsetningu Innheimtustofnunar sveitarfélaga bar á góma. Hún átti vissulega með mér fund en erindið var allt annað. Við ræddum ekkert um Flateyri eða Innheimtustofnun sveitarfélaga. Að halda öðru fram eru ósannindi sem kemur svo sem ekki á óvart þegar litið er á þau þau makalausu og óheiðarlegu vinnubrögð sem a-listinn hefur lagt stund á síðustu daga," samkvæmt yfirlýsingu Gríms Atlasonar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert