Borgarstjóri segir yfirlýsingar Sóleyjar ekki réttar
„Vísað er á bug yfirlýsingum Sóleyjar Tómasdóttur, varaborgarfulltrúa Vinstri grænna um að afstaða borgarstjóra í mannréttindamálum sé byggð á vanþekkingu og fordómum gagnvart minnihlutahópum.
Borgarstjóri hefur þvert á móti lagt áherslu á þennan málaflokk með ýmsu móti, ekki síst þá þætti er varða málefni minnihlutahópa . Unnið er markvisst að margvíslegum mannréttindaverkefnum sem tilheyra hinum ýmsu sviðum borgarinnar.
Nú þegar hefur verið unnið að því að kynna mannréttindastefnu borgarinnar s.s. með þýðingu hennar á fimm tungumál, opnuð hefur verið heimasíða mannréttindaskrifstofu og verið er að leggja lokahönd á verkáætlun í málefnum innflytjenda. Einnig eru starfandi ýmsir starfshópar á vegum mannréttindaráðs eins og t.d. um möguleika á atvinnuþátttöku fatlaðra og öryggi á og við veitingastaði borgarinnar.
Bent er á að heimild til að ráða þrjá stjórnendur á mannréttindaskrifstofu var samþykkt þann 18. desember sl. í tíð hundrað daga meirihlutans þegar Sóley Tómasdóttir var formaður mannréttindanefndar. Hún og hundrað daga meirihlutinn höfðu því rúman mánuð til að ráða í þessar stöður, sem þau gerðu þó ekki.
Þá er einnig á það bent að í tíð hundrað daga meirihlutans, í nóvember sl. var enginn starfsmaður á mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar í fjórar vikur, meðan mannréttindastjóri var í námsleyfi
Ákvörðun meirihlutans í borgarstjórn nú að gera skipulagsbreytingar á starfsemi mannréttindaskrifstofu borgarinnar miðar að því að nýta betur þann mannauð sem nú þegar starfar að mannréttindamálum á öllum sviðum borgarinnar en alls starfa níu mannréttindafulltrúar innan borgarkerfisins. Með skipulagsbreytingunum gefst meira svigrúm til að styrkja einstök verkefni sem nýtast munu beint í þágu borgarbúa," að því er segir í yfirlýsingu frá borgarstjóra.
Innlent »
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 25. apríl 2008, Innlent Vilja ræða málefni mannréttindaskrifstofu
- Miðvikudagur, 7. maí 2008, Innlent Fjármunum varið í einstök mannréttindaverkefni
- Fimmtudagur, 11. október 2007, Innlent Sviptingar í borgarstjórn
- Laugardagur, 26. apríl 2008, Innlent Fríkirkjuvegur 11 ekki seldur?
- Föstudagur, 13. júlí 2007, Innlent Borgarstjóri vísar ásökunum minnihlutans til föðurhúsanna
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá




































