Ferðamenn á hraðferð

Lögreglan á Hvolsvelli stöðvaði erlenda ferðamenn á hraðferð.
Lögreglan á Hvolsvelli stöðvaði erlenda ferðamenn á hraðferð. mbl.is/Július

Lögreglan á Hvolsvelli stöðvaði átta bílstjóra fyrir of hraðan akstur skammt austan við Hvolsvöll frá klukkan 17 til 20 í kvöld. Þeir sem hraðast óku voru spænskir ferðamenn á tveimur jeppum sem báðir mældust á 145 km hraða þar sem 90 er hámark.

Annar ferðamaður var stöðvaður fyrir of hraðan akstur en hann ók á 130 km hraða. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert