Köstuðu eggjum á bíl

Óskað var aðstoðar lögreglu í Hveragerði á laugardagskvöld vegna tveggja ungmenna sem hefðu sparkað í hurð á bíl í bænum og beyglað hana. Að auki köstuðu ungmennin eggjum í bílinn.

Eftir að lögregla hafði haft afskipti af málinu og lokið við grunnrannsókn barst aftur tilkynning um að bíllinn hefði orðið fyrir frekari eggjaárás eftir að eigandi hennar hafði skilið við hann heima hjá sér.  Málið er í rannsókn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert