Kannabisefni fannst við leit í bifreið

Lögreglan á Suðurnesjum fann lítilræði af meintu kannabisefni við leit í bifreið í nótt.  Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi að eiga efnið.

Tveir ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur í gærkvöldi.  Sá fyrri var tekinn á Njarðarbrautinni í Reykjanesbæ en hann mældist á 85 km hraða þar sem hámarkshraðinn er 50 km.  Seinni ökumaðurinn var tekinn á Reykjanesbrautinni við Grænás en hann mældist á 95 km. hraða þar sem hámarkshraðinn er 70 km.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert