Allsherjarnefnd fundaði um mótmæli
Birgir Ármannsson, formaður allsherjarnefndar Alþingis, segist telja að lögregla hafi haft fullt tilefni til að grípa til aðgerða vegna mótmæla atvinnubílstjora á Suðurlandsvegi við Rauðavatn í síðustu viku. Nefndin fjallaði um málið í dag og ræddi við fulltrúa bílstjóra og lögreglu.
Fundurinn var haldinn að beiðni þriggja nefndarmanna stjórnarandstöðunnar, sem vildu fá nánari lýsingar á atburðarásinni við Rauðavatn þann 23. apríl.
Á fundinn komu Stefán Eiríksson og Hörður Jóhannesson, frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu ásamt fulltrúa dómsmálaráðuneytis. Þá kom Sturla Jónson, talsmaður vörubílstjóra, á fundinn ásamt lögmanni sínum.
Birgir segir, að farið hafi verið yfir atburði dagsins frá sjónarhóli beggja aðila og ljóst sé að mikið beri á milli í frásögnum aðila af atburðum sem áttu sér stað þennan dag.
Birgir segir nefndina fyrst og fremst hafa viljað fá þessar lýsingar beint og milliliðalaust frá aðilum sem tengdust málinu og bætir við að ekki verði um framhald að ræða á vegum nefndarinnar. Birgir segir að þó það sé á verksviði allsherjarnefndar að fara yfir lög og reglur sem varða lögregluna og réttarvörslu í landinu, sé nefndin ekki í hlutverki rannsóknar- eða úrskurðaraðila í málum af þessu tagi.
„Mitt persónulega mat er að lögregla hafi haft fullt tilefni til aðgerða af sinni hálfu, ekkert sem kom fram á þessum fundi gefur mér tilefni til þess að ætla að lögregla hafi gengið of langt miðað við þær erfiðu aðstæður sem þar voru uppi," segir Birgir
Birgir segir að ef einhver telur að harðræði hafi verið beitt gegn sér af hálfu lögreglu á sá aðili fullan rétt á því að bera slík mál undir dómstóla, og segir Birgir að ekki sé útilokað að til þess komi í þessu tilviki. „Dómstólar eru hinn rétti vettvangur til þess að skera úr um slík mál," segir Birgir.
Bloggað um fréttina
-
Vésteinn Valgarðsson Kemur á óvart eða þannig -
Jóhannes Ragnarsson Styðja ævinlega ofbeldi hers og lögreglu -
Heimir L Fjeldsted Vill Jón Magnússon auka valdssvið allsherjarnefndar?
Innlent »
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 7. júlí 2008, Innlent Munu ræða mál Ramses
- Fimmtudagur, 24. apríl 2008, Innlent „Setjast ekki í dómarasæti“
- Sunnudagur, 23. desember 2007, Innlent Farbannið virkar greinilega ekki
- Miðvikudagur, 23. apríl 2008, Innlent Lögregla beitir táragasi
- Laugardagur, 14. júní 2008, Innlent Þolendur þurfa að geta tjáð sig í öryggi
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































