Ekkert gjald fyrir símtöl innan kerfis Nova

Ný gjaldskrá fjarskiptafélagsins Nova tekur gildi 1. maí og segir félagið að hún feli í sér enn lægra verð á farsíma- og netþjónustu. Sé Nova eina íslenska farsímafyrirtækið sem ekki hafi hækkað verð á árinu. 

Frá og með 1. maí greiða allir viðskiptavinir Nova ekkert fyrir símtöl, myndsímtöl, SMS og MMS sín á milli, hvort sem þeir eru í frelsi eða áskrift. Áður gátu viðskiptavinir í áskrift hringt og sent skilaboð frítt sín á milli en með nýrri verðskrá gildir 0 kr. Nova í Nova einnig fyrir viðskiptavini í frelsi.

Innifaldar eru 1000 fríar mínútur í símtöl á mánuði og 500 frí skilaboð. Þá kostar 15 krónur á mínútu að hringja í öll önnur símanúmer á Íslandi, heimasíma og farsíma.

Nova segir, að farsímanotendur geti að auki lækkað símareikninginn sinn um a.m.k. 12.000 krónur á ári með því að skipta yfir til Nova, því allir viðskiptavinir fá 1000 króna afslátt á mánuði í 12 mánuði. Þá greiði viðskiptavinir Nova ekkert fyrir netnotkun í farsíma til áramóta samkvæmt nýrri verðskrá félagsins.

Verðskrá Nova birtist á vef fyrirtækisins á morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert