Ban segist ekki hafa lýst stuðningi við Austurríki
Frá fundi öryggisráðs SÞ. Reuters
Ban Ki-Moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur sent frá sér yforlýsingu þar sem hann segist ekki hafa hvatt aðildarríki SÞ og sendimenn til að styðja framboð Austurríkis til öryggisráðs SÞ. Segir Ban að öll ríkin þrjú sem sækjast eftir sæti í ráðinu: Ísland, Austurríki og Tyrkland, séu öll fullkomlega hæf til að axla þá ábyrgð.
„Framkvæmdastjórinn veit að Austurríki, Ísland og Tyrkland sækjast eftir þessum tveimur sætum á tímabilinu 2009-2010. Hann gerir sér grein fyrir því að ríkin eru öll fullkomlega hæf til að taka þessi sæti og óskar þeim öllum góðs gengis við að afla sér stuðnings aðildarríkjanna. Sem framkvæmdastjóri vill hann ekki lýsa yfir stuðningi við eitt ríki umfram annað," segir í yfirlýsingunni, sem talsmaður Bans sendi frá sér.
Málið snýst um ummæli, sem austurríska tímaritið Profil hafði eftir Ban þegar hann var nýlega í heimsókn í Evrópu. Sagðist Ban þá vona, að Austurríki yrði kjörið í öryggisráðið.
Bæði Íslendingar og Tyrkir tóku þetta óstinnt upp. Hafði Fréttablaðið m.a. eftir Kristínu Á. Árnadóttur, sem vinnur að framboði Íslands fyrir utanríkisráðuneytið, að ef rétt væri haft eftir framkvæmdastjóranum væri um að ræða mál sem snerti ekki aðeins Ísland heldur einnig öll önnur aðildarríki SÞ, sem hlytu að gera þá kröfu að framkvæmdastjórinn sýndi fyllsta hlutleysi.
Hans Winkler, skrifstofustjóri austurríska utanríkisráðuneytisins, sagði að Ban hefði persónuleg tengsl við landið vegna þess að hann var um tíma sendiherra Suður-Kóreu í Austurríki. Þess vegna hefði hann lýst sinni persónulegu skoðun í viðtalinu en ekki opinberri skoðun framkvæmdastjóra SÞ.
Innlent »
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 29. febrúar 2008, Innlent Ísland á erindi í öryggisráðið
- Þriðjudagur, 26. febrúar 2008, Innlent Ræddi við Ban Ki-moon
- Laugardagur, 8. desember 2007, Innlent Móta þarf afstöðu Íslands til Kosovo
- Miðvikudagur, 2. apríl 2008, Innlent Framkvæmdastjóri SÞ situr leiðtogafund NATO í fyrsta skipti
- Föstudagur, 21. september 2007, Innlent Ingibjörg Sólrún sækir fundi á vegum SÞ
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































